Íslenskur ættleiðingarhópur á heimleið
Sendiráðið varð þeirrar ánægju aðnjótandi að afgreiða vegabréfsáritanir fyrir fimm nýja Íslendinga sem áttu leið um Beijing nýverið. Íslendingarnir nýju, sem allt eru stúlkubörn, litu við í sendiherrabústaðnum ásamt foreldrum sínum og systkinum, áður en haldið var heim á leið. Starfsmenn sendiráðsins senda hamingjuóskir til stúlknanna og foreldra þeirra.


