Íslensk myndlist í Beijing
Íslenska sendiráðið tekur þátt í myndlistarsýningunni „One World One Home" sem stendur yfir í einu Borgarsafni Beijing (e. Capital Museum) dagana 11 til 13. þ.m. Safnið er nýbyggt og eitt glæsilegasta listasafn í Kína. Menningarmálaráðuneyti Kína er aðalskipuleggjandi sýningarinnar, en lögð er áhersla á tengingu sýningarinnar við Ólympíuleikana í ár.
Á sýningunni eru sýnd rúmlega 300 málverk frá sendiráðum 64 ríkja í Beijing. Auk Íslands taka m.a. sendiráð Noregs og Svíþjóðar, og 10 annarra Evrópuríkja þátt í sýningunni. Ljóst er að hér gefst gríðarlega gott tækifæri til að kynna íslenska myndlist á helsta listasafni Kína.
Framlag sendiráðsins til sýningarinnar eru mynd eftir Snorra Arinbjarnar (uppstilling) í eigu Listasafns Reykjavíkur, auk verka eftir Kristján Davíðsson, Helga Þorgils Friðjónsson og eftir Guðmund Thoroddsen, sem koma úr einkasafni sendiherra Íslands.
Þetta er í þriðja skipti sem sýning á verkum í eigu sendiráða er haldin í Beijing, en þetta er í fyrsta skipti sem sendiráð Íslands tekur þátt í sýningunni. Síðasta sýning var árið 2003.
Eftir að sýningunni lýkur í Beijing mun hluti hennar flytjast til annarra safna í Lanzhou í Gansu fylki og Zhengzhou í Henan fylki. Áætlað er að sýningum þar ljúki um miðjan október n.k.
Frekari upplýsingar um sýninguna er hægt að nálgast á vefslóðinni: http:77www.capitalmuseum.org.cn/ty/ty/htm.


