Ferðir til Tíbet
Vegna ástandsins sem skapast hefur í Tíbet er íslenskum ferðamönnum ráðlagt að kanna vel stöðu mála áður en haldið er afstað.
Samkvæmt kínverskum ferðamálayfirvöldum er aðgangur að héraðinu takmarkaður en til stóð að opna fyrir almenna ferðamenn þann 1. maí. Útlit er fyrir að sú ákvörðun hefur verið dregin tilbaka.
Ef íslenskir ríkisborgarar eru nú þegar á ferð um Tíbet þá mælir íslenska sendiráðið í Beijing með að láta sendiráðið vita af ferðum sínum.
Hægt er að hringja í sendiráðið eða senda okkur tölvupóst sem inniheldur upplýsingar um nafn, kennitölu, símanúmer, heimilisfang hótels og áætlaðri lengd dvalar í Tíbet.
Sjá fréttaflutning um takmarkanir til Tíbet:
CNN


