Íslensk ökuskírteini viðurkennd í Hong Kong
Íslendingar búsettir í Hong Kong gátu til skamms tíma ekki fengið ökuréttindi sín viðurkennd af yfirvöldum í Hong Kong og var þeim gert að gangast undir ökupróf. Þar sem þetta var bokkuð bagaleg staða fyrir ört vaxandi hóp Íslendinga á svæðinu, tók sendiráðið upp málið við þarlend umferðaryfirvöld.
Sendiráðið hefur um nokkurt skeið verið í samskiptum við yfirvöld í Hong Kong og komið á framfæri nauðsynlegum upplýsingum um tilhögun ökukennslu á Íslandi. Hafa yfirvöld nú upplýst að þau muni framvegis viðurkenna íslensk ökuskírteini og gera handhöfum þeirra kleift að fá í hendur Hong Kong ökuskírteini án sérstakrar próftöku.
Reglur þess efnis gengu í gildi 10. mars s.l. en með þessum breytingum mun hin ört vaxandi íslenskunýlenda njóta sömu fyrirgreiðslu og aðar norrænar þjóðir í Hong Kong.


