Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Íslensk listaverkasýning og hljómleikar í Xiamen

Á undanförnum árum hefur þróast íslenskt samfélag i Xiamen og töluverður fjöldi íslenskra listamanna hafa gert borgina að öðru heimili sínu.

12.3.2008

Ineke Guðmundsson, eiginkona Sigurðar Guðmundssonar, stofnaði kínversku-evrópsku listamiðstöðina í Xiamen háskóla og hefur verið leiðandi í að auka samstarf milli Kína og Evrópu í sjónrænni list (visual arts). Xiamen hefur einnig að geyma íslenskan veitingastað, nefndur „Heima“ og sá er rekinn af hjónunum Rúnari Sigurbjörnssyni og Elínu Ólafsdóttur.

Xiamen hefur á undanförnum árum dregið að sér fjölda íslenskra ferðamanna.

Dagana 8-9 mars heimsótti Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra Xiamen. Þar hitti hann þá Íslendinga sem búsettir eru á svæðinu, fundaði með forstöðumönnum kínversk-evrópsku listamiðstöðvarinnar og var viðstaddur opnun á listasýningu og hljómleikum í Ni Hao listagalleríinu.

Íslensku hjónin, Rúnar og Elín sýndu þar verk sín og fluttu 12 tónlistarverk sem hvert og eitt var tengt einu listaverkanna. Listasýningin var vel sótt sem og hljómleikarnir og vöktu töluverða athygli fjölmiðla. Birtist opnuviðtal við þau hjónin í kínverska blaðinu Xiamen Evening Post.

Hér að finna nánari upplýsingar um veitingastaðinn Heima.



 

 

Leturstærð: