Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Zhangjiaje

Heimsókn sendiherra til Zhangjiajie

27.2.2008

Dagana 23.- 24. febrúar heimsótti Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra Íslands, borgina Zhangjiajie i Hunan. Hann var þar í hópi diplómatiskrar sendinefndar.

Hunan hérað varð ílla úti í veðurofsanum sem geysaði í Kína í byrjun árs en nú er lífið farið að ganga sinn vanagang á ný.

Zhangjiajie er þekkt fyrir einstaka náttúrufegurð en þarna er að finna Wulingyuan þjóðgarðinn sem er fyrsti þjóðgarðurinn í Kína og er skráður í þjóðminjaskrá UNESCO. Þjóðgerðurinn er einnig skráður sem jarðfræðilegur þjóðgarður, einn sá fyrsti sinnar tegundar. Á svæðinu eru búsettir fjölmargir þjóðernisminnihlutir.

Zhangjiajie stefnir á styrkja ímynd sína á alþjóðavettvangi og hafa lagt aukna áherslu á ferðamannaiðnað sem helsta drifkraft framþróunar. Gunnar Snorri Gunnarsson átti í viðræðum við aðstoðar-borgarstjóra Mr. Xia Lingzhi um möguleikann á frekara samstarfi. En Ísland treystir einnig á einstaka náttúrufegurð til að laða að ferðamenn og gætu báðir aðilar notið góðs af auknu samstarfi.



 

 

Leturstærð: