Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Sendiherra sérstakur gestur Rotary-klúbbs Beijing.

27.2.2008

Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra var sérstakur gestur á fundi Rotary-klúbbs Beijing þann 26. þ.m. Á fundinum hélt sendiherra erindi um Ísland og íslenskt viðskiptaumhverfi, auk þess sem hann fjallaði um samskipti Íslands og Kína í nútíð og framtíð.

Rotary-klúbbur Beijing var stofnaður snemma á þriðja áratug síðustu aldar. Starfsemi hans lá lengi vel niðri en hefur í á síðustu 20 árum vaxið ört. Klúbburinn telur á annað hundruð félagsmenn. Þrír Rotary klúbbar starfa í Kína, en auk Beijing eru klúbbar í Shanghai og í Hong Kong/Macau.



 

 

Leturstærð: