Aðstaða fyrir íslensk fyrirtæki í Kína
Nordic Resource Group hafði samband við Sendiráð Íslands í Kína til að kynna norrænt framtak þar sem boðið er upp á tímabundna húsnæðisleigu fyrir norræn fyrirtæki i Beijing.
Um er að ræða skrifstofuhúsnæði til útleigu fyrir fyrirtæki frá Norðurlöndunum á viðráðanlegu verði þar sem reynt er að skapa norrænt vinnuumhverfi. Skrifstofuhúsnæðið hentar best minni fyrirtækjum og starfsstöðvum með 1-3 starfsmönnum.
Sendiráð Íslands í Kina vil hvetja íslensk fyrirtæki, sem áhuga hafa á að skoða frekar kínverska viðskiptaumhverfið, til að kynna sér þennan kost.
Ítarlegri upplýsingar má finna á heimasíðu Nordic Resource Group, og nálgast má þar upplýsingar um Nordic House.

