Sýning á verkum ERRÓs í Beijing
Sýning á myndum úr einkasafni ERRÓs var opnuð þann 12. þ.m. í Today Art Museum í Beijing. Sýningin ber yfirskriftina „Dolls and Molls” en flest verkanna byggja á annað hvort brúðum eða vígbúnum valkyrjum. Sýningin stendur til 3. janúar n.k., en þetta er fyrsta einkasýning á verkum ERRÓs á meginlandi Kína.
Auk listamannsins sjálfs, mættu um 200 manns við opnun sýningarinnar en Gunnar Snorri Gunnarsson sendiherra Íslands bauð jafnframt til móttöku að þessu tilefni.
Helstu styrktaraðilar sýningarinnar voru Glitnir Bank í Shanghai, utanríkisráðuneytið, menntamálaráðuneytið, Listasafni Reykjavíkur og Anthony Hardy ræðismaður Íslands í Hong Kong.


