Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Tollstjórinn og Nuctech skrifa undir kaupsamning

4.12.2007

Tollstjórinn í Reykjavík og kínverska fyrirtækið Nuctech, skrifuðu formlega undir kaupsamning þar sem íslenska tollgæslan kaupir sérútbúna bifreið frá fyrirtækinu. Skrifað var undir í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Beijing.

Nuctech sérhæfir sig í gegnumlýsingarbúnaði fyrir landamæraeftirlit og tollgæslu, og er eitt fremsta fyrirtæki á þessum vettvangi í heiminum. Hin nýja bifreið er hin glæsilegasta viðbót í tækjabúnað tollgæslunnar.



 

 

Leturstærð: