Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Kynning á Íslandi í stærstu bönkum Kína

27.11.2007

Í nóvember hafa stærstu bankar Kína verið með kynningu á Íslandi, þ.m.t íslenska hestinum og íslenskri list í helstu útibúum sínum. Markmið kynningarinnar er að opna augu Kínverja fyrir þeim möguleikum sem bjóðast á Íslandi auk þess að létta lund viðskiptavina bankanna sem þurfa oft að bíða í löngum röðum eftir þjónustu.

Kynningarmyndbandið var sýnt í eftirfarandi bönkum: Industrial and Commercial Bank of China í Qingdao og Jinan; Agriculture Bank of China í Beijing, Sichuan og Chongqin; ásamt Bank of China í Jinan.

Þetta er í fyrsta skipti sem Ísland hefur verið kynnt með þessum hætti og ómetanlegt tækifæri til að ná til fjölda fólks.



 

 

Leturstærð: