Sendiráð Íslands - Peking, Kína

Landmark Tower 1 #802, No.8 Dongsanhuan Bei Lu, Beijing 100004, Sími: +86 (10) 6590 -7795



Iceland promotion on China National Radio

Kynning á Íslandi í China National Radio

27.11.2007

Þann 18. nóvember s.l. var Isis Cai ferðamálafullrúa sendiráðsins boðið í útvarpsþáttinn “Wining, Dining, Entertainment & Travel" sem útvarpaður er á Metro Channel (FM101.8) China National Radio. The Metro Channel er ein af þrem vinsælustu útvarpstöðvum í Beijing og útvarpar til um 3 milljóna hlustenda daglega.

Helstu umræðuefnin voru íslenskur matur, jarðvarmi, jöklar, Bláa Lónið, Norðurljósin og áhugaverðir ferðamannastaðir á Íslandi. Auki þess var Isis spurð út verslun á Íslandi, helstu einkenni Íslendinga, og ástæðuna þess að Ísland hafi unnið þrjár „Miss World” fegurðarsamkeppnir.

Metro Channel bárust ríflega 300 fyrirspurnir frá áheyrendum varðandi Ísland á þeim eina og hálfa klukkutíma sem þátturinn var í útsendingu. Heppnir hlustendur fengu hraunmola að gjöf frá sendiráðinu.



 

 

Leturstærð: