News and Events
Íslenskuskólinn á netinu
Íslenskuskólinn er skóli á netinu fyrir íslensk börn og foreldra þeirra sem eru búsett erlendis. Í skólanum er áhersla lögð á íslenskukennslu, en aðrar námsgreinar fléttast að einnig inn í námið.
Skráning í skólann er ókeypis og þar kynnast nemendur öðrum krökkum á sama aldri sem jafnvel búa á sömu slóðum. Í skólanum er líka opinn verkefnabanki þar sem nemendur frá sex ára aldri finna skemmtileg verkefni við hæfi, sem reyna á lestur, ritun og hlustun.
Núna stendur yfir skráning á vefnámskeið sem standa yfir í nokkrar vikur. Á námskeiðunum vinna nemendur margvísleg verkefni á þeim hraða sem þeim hentar undir handleiðslu kennara.
Námskeiðsgjald er 8.000 ISK og er hægt að greiða það inn á bankareikning í íslenskum netbanka eða með greiðslukorti á vef skólans. Þar er einnig boðið upp á kaupa gjafabréf sem veita aðgang að námskeiði, en það er upplögð gjöf til barna eða barnabarna sem búsett eru erlendis.
Starfsfólk Íslenskuskólans veita fúslega nánari upplýsingar varðandi námskeiðin.

