Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Um sendiráðið

Árið 1967 þegar höfuðstöðvar NATO voru fluttar frá París til Brussel var fastanefnd Íslands hjá NATO einnig færð á milli borganna tveggja. Á sama tíma var ákveðið að útvíkka hlutverk hennar á þann veginn að nefndin varð til viðbótar að sendiráði Íslands gagnvart Belgíu og Evrópubandalaginu (forveri Evrópusambandsins). Tæpum tuttugu árum síðar ákveðið að skipta starfseminni upp með þeim hætti að starfsemi sendiráðsins yrði skilin frá fastanefnd NATO. Þar með var tólfta íslenska sendiskrifstofan stofnuð og er hún nú fjölmennasta sendiskrifstofa Íslands.

Ástæðan fyrir stærð skrifstofunnar er sú að ásamt hefðbundinni tvíhliða starfsemi er hlutverk hennar að vera sendiráð Íslands gagnvart Evrópusambandinu (ESB). Meginhluti starfseminnar snýr því að þeim þætti, sérstaklega vegna EES-samningsins en einnig vegna ýmiss annars Evrópusamstarfs s.s. þátttöku Íslands í Schengen.

Hvað tvíhliða starfsemi varðar þá eru umdæmisríki sendráðsins þrjú: Belgía, Lúxemborg og Sviss - og eru samtals sex ræðismenn starfandi í ríkjunum þremur. Gagnvart umdæmisríkjunum sinnir sendiráðið hefðbundnu hlutverki sendiskrifstofa, þ.e.a.s. að veita aðstoð við Íslendinga og gæta hagsmuna Íslands í víðum skilningi - einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningarmála.






Embassy of Iceland, Brussel - Office location

Sendiráð Íslands
Rond-Point Schuman 11
1040 Bruxelles

Sími: +32 (0)2 238 50 00
Fax: +32 (0)2 230 69 38
Veffang: www.iceland.org/be
Netfang: emb.brussels@mfa.is



 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: