Lúxemborg
Lúxemborg varð eitt af umdæmisríkjum sendiráðs Íslands í Brussel árið 1971. Einn ræðismaður starfar þar nú fyrir Íslands hönd. Viðskipti milli ríkjanna tveggja hafa verið í sókn á undanförnum árum (sjá tölulegar upplýsingar um inn- og útflutning á heimasíðu Hagstofu Íslands). Útflutningsvörur Íslands til Lúxemborgar eru einkum lyfjavörur og sjávarafurðir. Innflutningsvörur frá Lúxemborg eru aftur á móti mun fjölbreyttari, þó einkum ýmsar framleiðsluvörur s.s. járn og stál, unnar gúmí og málmvörur og vélar og samgöngutæki.
Ýmsar upplýsingar um Lúxemborg
Staðsetning: Vestur Evrópa - á milli Frakklands og Þýskalands.
Stærð: 2.586 km2.
Fólksfjöldi: 468.571 (júlí 2005).
Opinber tungumál: Lúxembúrgíska er hið almenna tungumál en þýska og franska eru einnig töluð.
Trúarhópar: 87% Rómversk-kaþólskir, 13% Mótmælendur, Gyðingar og Múslimar.
Stjórnarfar: Stjórnarskrárbundið konungsdæmi.
Hagkerfi: Frjálst, hátekju hagkerfi sem byggir mikið á samskiptum við önnur ríki og á erlendu vinnuafli. Þjónustugreinar skila mestu í þjóðarbúið (yfir 80% af GDP) og er bankastarfsemi þar áberandi áhrifaþáttur. Iðnaður kemur næst á eftir (mikið flutt út af stáli) með um 16% af GDP.
Sjá fleiri staðreyndir í CIA- World Fact Book
Tenglar
Ísland og Lúxemborg
Stjórnmál
Viðskipti
- Belgian and Luxembourg exporters directory
- Heimasíða Hagstofu Íslands - upplýsingar um innflutning/útflutning til og frá Lúxemborg
- Tölfræðilegar upplýsingar um Lúxemborg
Ferðamál

