Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Belgía

Belgía

Árið 1967 voru höfuðstöðvar NATO fluttar frá París til Brussel. Um leið var fastanefnd Íslands hjá NATO færð milli borgana tveggja og ákveðið var gera hana einnig að sendiráði gagnvart Efnahagsbandalagi Evrópu annars vegar og Belgíu hins vegar. Tæpum 20 árum síðar, eða árið 1986, var starfsemin aftur á móti klofin í tvennt á þann hátt að starfsemin hjá NATO var höfð sér. Allar götur síðan hefur Ísland verið með sendiráð í Brussel og hefur hlutverk þess m.a. verið að sjá um tvíhliðasamskipti við Belgíu. Bein samskipti Íslands og Belgíu hafa aukist á undanförnum áratugum t.d. vegna aukinna viðskipta (sjá tölulegar upplýsingar á heimasíðu Hagstofu Íslands).

Ýmsar upplýsingar um Belgíu

Stærð: 30.528 km2.

Fólksfjöldi: 10.364.388 (júlí 2005).

Opinber tungumál: Flæmska, franska og þýska.

Þjóðernishópar: Flæmingjar, Vallonar og aðrir.

Trúarhópar: Rómversk-kaþólskir 75%, Mótmælendur, aðrir 25%.

Stjórnarfar: lýð- og þingræðislegt sambandsríki með stjórnarskrárbundinni konungsstjórn.

Hagkerfi: Góðar samgöngur frá Belgíu til annarra Evrópuríkja hafa stuðlað að nútímavæðingu hagkerfisins. Í dag byggir hagkerfið að mestu leyti á þjónustu (74%) og iðnaði.

Sjá fleiri staðreyndir í CIA - world fact book

Tenglar

Ísland og Belgía

Stjórnmál

Viðskipti

Ferðamál

Annað






 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: