Umhverfismál
Umhverfismál
Þeir hlutar EES-samningsins sem eru á ábyrgðarsviði umhverfisráðuneytisins og falla undir starfssvið fulltrúa umhverfisráðuneytisins í sendiráðinu eru:
-
Umhverfismál, þ.e. umhverfisvernd og mengunarvarnir (undanskilin er almenn náttúruvernd)
-
Öryggi matvæla, efnavörur og eiturefni, hættuleg efni og snyrtivörur
Áætlað hefur verið að undir þessum málaflokkum séu nálægt 40% fjölda þeirra gerða sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn.
Hlutverk fulltúra ráðuneytisins í Brussel vegna EES-samningsins er einkum eftirfarandi:
-
Að taka þátt í vinnuhópum og undirnefndum á vegum EFTA er varða umhverfismál, efnavörur og eiturefni og matvælamál,
-
Að taka þátt í fundum sérfræðinga- og vinnunefnda á vegum vegum ráðherraráðs og framkvæmdastjórnar ESB (þegar sérfræðingar að heiman geta einhverra hluta vegna ekki mætt til viðkomandi funda),
-
Að fylgjast náið með þróun löggjafar innan ESB á sviði umhverfismála, matvæla, efnavara og eiturefna, hættulegra efna og snyrtivara og upplýsa ráðuneytið og viðeigandi stofnanir þess um gang mála,
-
Að fylgjast með og sjá að hluta um þær gagnasendingar sem ganga á milli íslenskra stjórnvalda og EFTA/ESA annars vegar svo og gagnvart Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) hins vegar,
-
Að sækja sérhæfða fundi, kynningar- og umræðufundi svo og ráðstefnur á umhverfissviðinu áður en slík mál fara til umfjöllunar og afgreiðslu hjá ráðherraráðinu og evrópuþinginu.
Fulltrúi umhverfisráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel er:
S: +32 (0) 2 238 50 00
Fax: + 32(0) 2 230 69 38
Tenglar

