Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Sjávarútvegur

EES-samningurinn og sjávarútvegur

Þrátt fyrir að EES-samningurinn taki ekki til sjávarútvegs eru í honum ýmis atriði sem snerta íslenska sjávarútvegshagsmuni beint og/eða óbeint. Við gerð EES-samningsins var fjallað sérstaklega um viðskipti með sjávarafurðir og samið um afnám tolla eða tollalækkanir fyrir flestar mikilvægustu útflutningsafurðir Íslands til ESB. Einnig var mælt fyrir um að ríkisstyrkir og markaðsskipulag sem skekkir samkeppni skuli afnumið og að aðgangur að höfnum landanna skuli vera til staðar. Að auki var tryggt að ákvæði fríverslunarsamnings Íslands og ESB frá 1973 um sjávarafurðir gildi ofan ákvæðum EES-samningsins þegar þau fela í sér betri kjör.

Í fyrsta viðauka EES-samningsins er fjallað skyldan málaflokk, nánar tiltekið um hollustu og heilbrigði dýra og dýraafurða. Ísland tók upp þann hluta viðaukans sem snertir viðskipti með sjávarafurðir árið 1999 og varð sú breyting til þess að Ísland stendur jafnhliða ESB ríkjunum varðandi innflutning á sjávarafurðum. Yfirvöld á Ísland bera þess vegna ábyrgð á því að kröfum ESB til framleiðslu þessara afurða sé fullnægt og hafa eftirlit með því að innflutningur þriðju ríkja í gegnum Ísland uppfylli samræmdar kröfur um hollustu.

Þessir málaflokkar falla undir verksvið sjávarútvegsráðuneytisins og eftir því sem við á undirstofnanir þess, Fiskistofu og Rannsóknarstofnun Fiskiðnaðarins. Ísland hefur rétt til þátttöku á fundum um atriði er varða hollustu og heilbrigði dýra og dýraafurða á ofangreindum grunni. Þátttökunni fylgir réttur til setu í viðkomandi sérfræðinganefndum sem starfa á vegum framkvæmdastjórnarinnar með umsagnar- og tillögurétti en án atkvæðisréttar. Fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins í sendiráði Íslands í Brussel er tengiliður milli íslenskra stjórnvalda og ESB hvað varðar þessa málaflokka og ber að fylgjast með því sem framvindur innan þeirra. Jafnframt er hann sams konar tengiliður við skrifstofur EFTA og ESA.

ESB er lang stærsti innflytjandi íslenskra sjávarafurða, en rúm 70% af heildarverðmæti útflutnings íslenskra sjávarafurða kemur þaðan. Það er því mikilvægt að tryggja aðgang að mörkuðum ESB og fylgjast með þróun mála hverju sinni.

Auk þessara málaflokka fylgist sjávarútvegsráðuneytið með vinnu ESB varðandi stjórn fiskveiða og umhverfismál hafsins. Varða þessi atriði íslenska hagsmuni beint að því er varðar sameiginlega fiskistofna, alþjóðlegar reglur um nýtingu þeirra og um notkun og umgengni um hafið og auðlindir þess.

Fulltrúi sjávarútvegsráðuneytisins í sendiráðinu er:

Kolbeinn Árnason

S: +32 (0) 2 238 50 11

Fax: +32 (0) 2230 69 38

Tenglar



 

 

Leturstærð: