Schengen
Schengen samstarfið og önnur verkefni Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins
Schengen samstarfið er nú óaðskiljanlegur þáttur af starfi Evrópusambandsins á sviði dóms- og innanríkismála. Áhersla Evrópusambandsins á þetta svið hefur aukist ár frá ári frá árinu 2001, í kjölfar síendurtekinna hryðjuverka og vegna áherslu á baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Megininntak Schengen samstarfsins er samstarf um ytra landamæraeftirlit og afnám persónueftirlits á innri landamærum aðildarríkja, sem tengist hugmyndinni um frjálsa för fólks. Stuðningsaðgerðir sem þessu fylgja eru á ýmsum sviðum, t.d. náin lögreglusamvinna, réttaraðstoð í sakamálum, rekstur sameiginlegra gagnabanka s.s. Schengen upplýsingakerfisins (SIS), samræmdar reglur um landamæraeftirlit, samræmdar vegabréfsáritanir, upplýsingaskipti og samvinna um útlendingamálefni o.s.frv.
Ísland gerðist aðili að Schengen samstarfinu ásamt hinum Norðurlöndunum árið 1996. Á árinu 1999 var samstarfið flutt undir hatt Evrópusambandsins, en vegna aðildar Íslands og Noregs var þá ákveðið með sérstökum samningi við ríkin tvö að setja upp „samsetta nefnd“ í ráðherraráðinu sem fjallar um öll Schengen tengd málefni og tekur Ísland þátt í fundum hennar.
Ríki sem ekki eru aðildarríki Evrópusambandsins eiga almennt ekki aðild að mótun ákvarðana í ráðherraráðinu með þessum hætti. Þá er það og einsdæmi að íslenskir sendiherrar og ráðherrar stýri fundum samstarfsmanna sinna í Evrópusambandinu í ráðherraráðinu, en formennska samsettu nefndarinnar er hjá Íslandi síðari hluta annars hvers árs, á móti Noregi, en formennskuríki Evrópusambandsins stýrir samsettu nefndinni fyrri hluta ársins. Sviss mun koma inn í þessa verkaskiptingu árið 2007.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið ber meginábyrgð á íslenska Schengen samstarfinu. Starfið á Íslandi hvílir að miklu leyti, auk ráðuneytisins, á embætti ríkislögreglustjóra, Útlendingastofnun og embættum þeirra sýslumanna sem bera þungann af landamæraeftirlitinu, fyrst og fremst á Keflavíkurflugvelli en einnig á Seyðisfirði og í Reykjavík. Allir lögreglustjórar á landinu eru tengdir Schengen upplýsingakerfinu og Persónuvernd tekur þátt í eftirlitsnefnd Schengen um meðferð persónuupplýsinga sem samstarfinu tengjast. Eftirlit með framkvæmd Schengen reglnanna hefur frá upphafi verið í höndum Schengen aðildarríkjanna sjálfra, nú á vettvangi samsettu nefndarinnar í ráðherraráðinu. Haustið 2005 fór fram úttekt á Norðurlöndunum og reyndust þau öll þ.m.t. Ísland framfylgja reglunum svo að til fyrirmyndar þykir.
Starf fulltrúa dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í sendiráðinu í Brussel felst öðru fremur í að sinna samsettu nefndinni í ráðherraráðinu, sem fjallar um þróun og beitingu Schengen regluverksins. Í starfinu felast einnig margháttuð tvíhliða samskipti við formennskuríki ESB hverju sinni, en samstarf er við ESB á ýmsum sviðum sem tengjast eða leiða af Schengen samstarfinu, t.d. á sviði hælismála, á grundvelli “Dublin” samningsins sem fjallar um hvaða ríki ber ábyrgð á umsókn um pólitískt hæli sem borin er fram í einhverju aðildarríkjanna. Þá hafa verið gerðir samstarfssamningar við ESB sem tengja Ísland við ýmsar stofnanir Evrópusambandsins á sviðinu, svo sem við Europol, Eurojust og Landamærastofnun. Í starfi fulltrúans felst jafnframt að vera upplýsingaveita til íslenskra stjórnvalda og vera tengiliður milli ESB og þeirra stofnana og embætta sem bera ábyrgð á samstarfinu á Íslandi.
Auk þátttöku í Schengen samstarfinu sinnir fulltrúinn málum á vettvangi EES-samningsins vegna þess hluta fjórfrelsins sem lýtur að frjálsri för fólks og einnig málum sem tengjast samstarfi við ESB um almannavarnir og persónuverndar málefni.
Fulltrúi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins í sendiráðinu er:
S: +32 (0)2 238 5021
Fax: +32 (0)2 230 69 38
Tenglar
- Upplýsingasíða utanríkisráðuneytisins um Schengen
- Útlendingastofnun
- Ríkislögreglustjóri
- Sýslumaðurinn - vefur sýslumanna
- Heimasíða framkvæmdastjórnar ESB: Dóms- og innanríkismál
- Heimasíða ráðherraráðs ESB: Dóms- og innanríkismál
- Heimasíða ESB: Réttlæti - öryggi og frelsi

