Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Samgöngur

Samgöngumál

Málaflokkar

Kjarninn í vinnu fulltrúa samgönguráðuneytisins varðar þá vinnuhópa EFTA sem falla undir verksvið ráðuneytisins þ.e. samgöngumál almennt, (flugmál, umferðarmál, hafna- og siglingamál og öll öryggis- og verndarmál er falla undir samgöngugeirann) fjarskiptamál og póstmál. Fulltrúi samgönguráðuneytisins aflar upplýsinga um Evrópulöggjöf sem hugsanlega þarf að taka upp í EES-samninginn, og varðar málaflokka samgönguráðuneytis, og greinir þörf á viðeigandi viðbrögðum íslenskra stjórnvalda.

Með samanburði á gildandi löggjöf á Íslandi, fyrri þjóðréttarskuldbindingum og væntanlegum EES-reglum er unnt að greina hvort líklegt sé að viðkomandi reglur falli undir gildissvið EES-samningsins, sé líklegt að viðkomandi löggjöf muni falla innan gildissviðs hans þarf að fara fram mat á því hvaða afleiðingar viðkomandi löggjöf kunni að hafa á Íslandi.

Verklag

  • Fulltrúi samgönguráðuneytisins er milligönguaðili samgönguyfirvalda og alþjóðastofnana er koma að framkvæmd EES-samningsins. Fulltrúinn kemur einnig upplýsingum til samgönguyfirvalda frá öðrum aðildarríkjum EFTA um allt það sem kann að hafa þýðingu fyrir framkvæmd EES-samningsins.
  • Mikilvægi verkefna ræðst af þýðingu þeirra fyrir íslenskt samfélag. Þau verkefni sem hafa mestan kostnað eða ávinning í för með sér fyrir ríki eða almenning eru mikilvægust. Athygli ráðuneytis og fagstarfsmanna í undirstofnunum er vakin á slíkum málum og drög lögð að framhaldinu.
  • Kanna þarf hvort drög afleiddrar löggjafar falli undir gildissvið EES-samningsins í samráði við ráðuneyti.
  • Þegar afleidd löggjöf kemur fram sem fellur innan gildissviðs EES þarf athugun að fara fram á nauðsyn sérstaks aðlögunartexta í vinnunefnd EFTA áður en ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar um innleiðingu gerðar í EES-samninginn er tekin.
  • Tryggja þarf að EES-ákvarðanir sem hafa verið teknar verði innleiddar í íslenskan rétt án þess að til atbeina Eftirlitsstofnunar EFTA þurfi að koma. Ef til aðgerða kemur af hálfu Eftirlitsstofnunar EFTA þarf að tryggja að innlend stjórnvöld virði tímafresti og að svör þeirra leiði ekki til enn frekari aðgerða.

Tenglar



 

 

Leturstærð: