Rannsóknir og tækniþróun
Rannsóknir og tækniþróun
Evrópusambandið hefur síðan 1984 staðið fyrir fjölþjóðlegu samstarfi á sviði rannsókna og tækniþróunar í þeim tilgangi að byggja upp sameiginlegan innri markað og auka samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar. Yfirstandandi rammaáætlun (2003-2007) samanstendur af sjö forgangssviðum og tíu þverlægum rannsóknaáætlunum sem allar styrkja samstarf á sviði rannsókna og tækniþróunar.
Ísland tekur þátt í rammaáætlunum Evrópusambandsins á sviði rannsókna og tækniþróunar á grundvelli 81 gr. og prótókol 31 í EES-samningum. Er hér um að ræða eitt af svonefndum jaðarsviðum samningsins. Þátttaka Íslands hófst í lok þriðju rammaáætlunarinnar (janúar 2003) en frá og með fjórðu rammaáætluninni (1994-1998) hefur Ísland tekið fullan þátt í rannsóknasamstarfi Evrópusambandsins að undanskildum rannsóknum á sviði kjarnorku. Samtals hafa þessar áætlanir yfir tæplega 18 milljörðum evra að ráða fyrir utan framlag EES-landanna.
Menntamálaráðuneytið ber ábyrgð á framkvæmd samningsins um rannsóknasamstarfið á Íslandi en Rannsóknamiðstöð Íslands (RANNÍS) sér um framkvæmd einstakra þátta samstarfsins í umboði ráðuneytisins. Þátttökunni fylgir réttur til setu í stjórnarnefndum áætlunarinnar með umsagnar- og tillögurétti en án atkvæðisréttar. Einnig á Ísland fulltrúa í CREST, ráðgjafarnefnd ráðherranefndarinnar um rannsóknamál. Í sendiráði Íslands í Brussel er vísindafulltrúi sem situr ofangreinda fundi og sinnir öðrum störfum sem þátttökunni fylgja. Starfar hann í raun sem tengiliður milli stjórnvalda og ESB. Hlutverk hans að koma hagsmunum/skoðunum Íslands á framfæri, upplýsa Menntamálaráðuneytið um stöðu mála hverju sinni og taka þátt í undirbúningi nýrra áætlana.
Þátttaka íslenskra vísindamanna í áætlununum hefur jafnan verið mjög góð og skilað íslensku samfélagi aukinni þekkingu, alþjóðlegum samstarfsaðilum og auknu fjármagni til rannsókna. Sem dæmi má taka að í 5. rammaáætluninni var árangurshlutfall íslenskra umsækjenda um 37%.
Framlög EES-landanna til yfirstandandi rammaáætlunar nema um 2% af heildarframlögum til áætlunarinnar. Hlutur Íslands er um 16 milljónir evra.
Vísindafulltrúi í sendiráði Íslands í Brussel er:
S: +32 (0)2 238 5013
Fax: +32 (0)2 230 69 38
Tengiliður hjá RANNÍS: hjordis@rannis.is

