Menningar-, mennta- og æskulýðsmál
Menningar-, mennta- og æskulýðsmál
Á vettvangi menningar-, mennta- og æskulýðsmála tekur Ísland þátt í fjölbreytilegu samstarfi á grundvelli EES-samningsins. Að verulegu leyti er þetta samstarf skipulagt innan ramma aðgerðaáætlana sem eru starfræktar til nokkurra ára í senn. Í gegnum þessar áætlanir er styrkjum veitt til ýmiss konar verkefna og starfsemi sem lýtur að því að efla samvinnu Evrópuþjóða á þessum sviðum.
Í menntamálum er markmiðið að efla gæði náms, tryggja aðgengi allra evrópskra þegna að símenntun og opna fyrir samstarf út fyrir álfuna. Menningarsamstarfinu er að sama skapi ætlað að efla listir, ýta undir evrópska samkennd og stuðla að útbreiðslu evrópskrar menningar. Auk þess sem ungt fólk nýtur góðs af samstarfsáætlunum í mennta- og menningarmálum er sjónunum sérstaklega beint að fólki á aldrinum 15-25 ára í gegnum æskulýðsáætlunina sem er ætlað að ýta undir félagslega virkni ungs fólks.
Eftirfarandi áætlanir eru nú við lýði sem Ísland, ásamt öðrum EES/EFTA ríkjum, tekur þátt í á sviði mennta- menningar-, æskulýðsmála:
-
Sókratesáætlunin (2000-2006) sem styrkir samstarf á öllum skólastigum (Comenius fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, Erasmus fyrir háskólastigið, Grundtvig fyrir fullorðinsfræðslu).
-
Erasmus Mundus (2004-2008) - áætlun um samstarf evrópskra háskóla við umheiminn.
-
eLearning - áætlun um notkun upplýsingatækni í skólastarfi.
-
European bodies and specific activities in the field of education and training (2004-2008) - áætlun um ýmiss konar samstarfsverkefni og stuðning við stofnanir og samtök, sem falla utan verksviðs annarra menntaáætlana.
-
Youth (2000-2006) – æskulýðsáætlun.
-
European bodies in the field of youth (2004-2006) – áætlun um ýmiss konar samstarfsverkefni og stuðning við stofnanir á sviði æskulýðsmála, sem falla utan verksviðs æskulýðsáætlunarinnar Youth.
-
Culture 2000 (2000-2006) – menningaráætlun.
-
MediaPlus (2000-2006) - áætlun fyrir hljóð/myndræna iðnaðinn.
Þátttaka Íslands í ofangreindum áætlunum hefur verið mikil og hafa tugir þúsunda Íslendinga notið góðs af.
Þessar áætlanir í núverandi mynd munu flestar renna skeið sitt á enda í lok árs 2006 og við mun taka ný kynslóð áætlana (2007-2013). Á heimasíðu EFTA er greinargott yfirlit yfir allar áætlanir ESB sem EFTA-ríkin innan EES taka þátt í, yfir nýjar áætlanir sem eru í sjónmáli ásamt upplýsingum um heildarfjárveitingar og framlög okkar til samstarfsins.
Af hálfu Íslands ber menntamálaráðuneytið ábyrgð á framkvæmd samningsins um þátttöku Íslands í fyrrnefndum áætlunum. Á Íslandi eru starfræktar sérstakar skrifstofur í umboði ráðuneytisins sem sjá um kynningu áætlananna og aðstoð við umsækjendur. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins sér um rekstur landsskrifstofu Sókratesáætlunarinnar, Erasmus Mundus og eLearning. Landskrifstofa Leonardo da Vinci er rekin af Rannsóknaþjónustu HÍ. ÍTR fer með framkvæmd æskulýðsáætlunarinnar. Upplýsingamiðstöð menningarmála sér um framkvæmd þátttöku í Culture 2000 og Media upplýsingaþjónustan á Íslandi fer með framkvæmd MediaPlus og Media Training.
Af hálfu Evrópusambandsins fer stjórnardeild mennta- og menningarmála – Directorate General for Education and Culture - með framkvæmd þessara mála.
Fulltrúi sendiráðsins í Brussel á þessu sviði er:
S: +32 (0)2 238 50 14
Fax: +32 (0)2 230 69 38

