Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Landbúnaður

Landbúnaður

Landbúnaður, heilbrigði dýra, plantna og afurða - fellur að fyrsta hluta fjórfrelsisins, sem er um frelsi í vöruflutningum innan EES svæðisins. Hin sameiginlega landbúnaðarpólitík ESB – Common Agricultural Policy – var hins vegar undanskilin við gerð EES-samningsins, sem leiðir af sér að öll ákvæði laga og reglna er varða flæði vöru, sem er að finna í tollkafla 1-24 í samræmdu vörulýsingar- og vörunúmeraskránni, ná ekki til aðstæðna á Íslandi nema að um þau sé sérstaklega fjallað í texta samningsins og tekið þar fram á hvern hátt þau skuli gilda.

Það er fyrsta lagi gert í I. viðauka samningsins sem er um heilbrigði dýra og plantna og í öðru lagi í bókun 3, þar sem taldar eru upp unnar framleiðsluvörur úr landbúnaðarhráefnum sem samkomulag er um að greiða fyrir með viðskipti innan EES svæðisins með viðskiptalegum ívilnunum þ.e. tollalækkunum. Ennfremur er að finna ákvæði í 19. gr. samningsins um að samningsaðilar skuldbinda sig til að halda áfram viðleitni sinni til að auka smám saman frjálsræði í viðskiptum með landbúnaðarafurðir.

Verkefnaskrá fulltrúa landbúnaðarráðuneytisins ræðst af efnisinnihaldi EES-samnings og má flokka í eftirfarandi málaflokka:

  • Heilbrigði dýra
  • Heilbrigði plantna
  • Dýrafóður
  • Tilbúinn áburður
  • Sáðvörur
  • Unnar landbúnaðarafurðir- (bókun 3)
  • Tvíhliða tollasamingar milli ESB og Íslands – (gr. 19.)

Auk þessara málaflokka koma til ýmiss önnur mál sem tengjast málaflokkum annarra ráðuneyta vegna skörunar, s.s.:

  • Merking matvæla
  • Rekjanleiki matvæla
  • Smitefni sem berast milli manna og dýra – BSE - zoonósur
  • Umhirða dýra og rými í húsum og flutningatækjum

Sameining matvæla-og neytendamála undir einn málaflokk ("Health and Consumer Protection") hjá ESB á grundvelli matvælalaga -Regulation (EC) No 178/2002 - hefur valdið því að sviðið verður það mjög víðtækt. Það leiðir af sér að hluti þeirra verkefna sem fellur undir Health and Consumer Protection, sem ofangreindir þættir heyra til, fellur undir verksvið fulltrúa landbúnaðarráðuneytisins og aðrir hlutar undir verksvið fulltrúa annarra ráðuneyta s.s. UMRN og SJRN.

Verksvið undir þessum málaflokk innan ESB eru sex en skiptist hvert þeirra upp í 4 til 7 undirflokka, alls 32. Á þessum sviðum starfa sérfræðinganefndir, vinnunefndir og fastanefndir eftir fagsviðum sem vinna að framkvæmd, endurskoðun og nýsetningu gerða sem ná til matvæla og heilbrigðis manna og dýra sem fellur undir “Health and Consumer Protection”.  Verkefni fulltrúa landbúnaðarráðuneytisins er að taka þátt í áðurnefndum nefndarstörfum ásamt sérfræðingum frá Íslandi til að gæta hagsmuna Íslands við reglusetningu þeirri er skylt er að innleiða í EES-saminginn.

Innleiðing og túlkun gerða á sviði þess málaflokks sem lýst er að framan, sem EFTA skrifstofan og Eftirlitsstofnun EFTA vinna að kemur í framhaldi af ákvörðunum teknum af ESB og kallar á samstarf við þau svið þessara stofnana sem málflokkurinn heyrir til.

Fulltrúi landbúnaðarráðuneytisins í sendiráðinu er:

Guðmundur Sigþórsson

S:+32 (0)2 238 5023

Fax: +32 (0)2 230 69 38



 

 

Leturstærð: