Félags- og atvinnumál
Félags- og vinnumál
Með aðild að EES-samningnum er Ísland hluti af vinnumarkaði ESB. Í því felst að Ísland hefur skuldbundið sig til að taka upp samræmdar Evrópureglur er varða frjálsa för launþega, gagnkvæma viðurkenningu prófskírteina, reglur um almannatryggingar, ákvæði um vinnuvernd og vinnulög, sem og skyldur til að tryggja jafna stöðu og rétt kvenna og karla á vinnumarkaði. Ennfremur gefur EES-samningurinn Íslandi tækifæri til að taka þátt í ýmsum verkefnum og samstarfsáætlunum á sviði félags- og vinnumála.
Frjáls för launþega
Reglur um frjálsa för launþega eru grundvallarreglur fyrir innri markað ESB og evrópska efnahagssvæðið. Í 28. gr. EES-samningsins segir að aðildarríkjum samningsins beri að tryggja hindrunarlausa för launþega í atvinnuskyni og að ekki megi á nokkurn hátt mismuna þeim á grundvelli þjóðernis. Þá kveður 68. gr. á um að ríkin skuli setja reglur á sviði vinnuréttar sem tryggja góða virkni hins evrópska vinnumarkaðar. Á þeim grundvelli hafa verið felldar í samninginn ýmsar gerðir ESB sem t.d. tryggja rétt launþega til samráðs og til upplýsingaöflunar frá sínum fyrirtækjum.
Vinnuvernd
EES-samningurinn felur í sér skuldbindingu um að yfirtaka reglur ESB er varða vinnuvernd og vinnuskilyrði. Reglur sem þessar þjóna bæði þeim tilgangi að skapa samræmda vernd fyrir starfsmenn á vinnumarkaði óháð því í hvaða landi vinnan fer fram, en einnig því að tryggja jafnræði hvað varðar samkeppnisskilyrði fyrirtækja á innri markaði.
Jöfn staða kvenna og karla
Í EES-samningum er fjallað um skyldur til að gæta að jafnri stöðu kvenna og karla. Annars vegar er sú skylda lögð á aðildarríki EES-samningsins að tryggja sömu laun fyrir sömu vinnu. Hins vegar ber ríkjunum að vinna að framgangi jafnréttis kynjanna með sameiginlegum framkvæmdum. Ísland hefur í gegnum EES-samninginn verið virkur þátttakandi í jafnréttisáætlunum ESB. Jafnréttisstofa hefur annast formlega samræmingu á þátttöku í áætlunum og hefur sýnt sig að Ísland hefur mikið fram að færa í þessari mikilvægu umræðu.
Félagsmál, almannatryggingar og prófskírteini
EES-samningurinn kveður á um nána samvinnu og samstarf aðildarríkja á sviði félagsmála. Þá eru ákvæði um formlegt samstarf félags- og efnahagsmálanefndar ESB við sambærilega EFTA nefnd, svokallaða ráðgjafarnefnd EFTA. Samningurinn felur hins vegar ekki í sér fyrirmæli um innleiðingu gerða ESB á svið félagsmála umfram það sem rekja má beint til fjórfrelsisins. EFTA-ríkin innan EES eru heldur ekki hluti af þeirri vinnu sem fram fer á vettvangi félagsmálastefnu ESB. Hins vegar hafa EFTA ríkin verið virkir þátttakendur í ýmsum samstarfsverkefnum á þessu sviði, svo sem varðandi aðgerðir til að bæta stöðu fatlaðra, aðgerðir gegn mismunun, áætlun gegn ofbeldi, ofl.
Réttur til almannatrygginga og gagnkvæmrar viðurkenningar prófskírteina eru viðfangsefni sem eru nátengd rétti launþega til frjálsrar farar. Vísað er á kaflann um heilbrigðismál til nánari glöggvunar, en heilbrigðisráðuneytið hefur umsjón með reglum á sviði almannatrygginga.
Þátttaka í áætlunum og tækifæri til samstarfs
EES-samningurinn gefur fjölda tækifæra til þátttöku í áætlunum ESB á sviði vinnu- og félagsmála. Hér fyrir neðan er getið þeirra áætlana sem Ísland, ásamt öðrum EFTA-ríkjum innan EES, er aðili að. Ýmsir möguleikar og tækifæri til samstarfs leynast á þessum sviðum.
Sérstök verkefni og áætlanir
- Áætlun gegn mismunun 2002-2006
- Jafnréttisáætlun ESB 2002-2005/2006
- Evrópsk vinnumiðlun EURES
- Áætlun gegn ofbeldi 2003-2007 DAPHNE II
- Vinnuverndaráætlun
- Fréttir og tilkynningar á sviði vinnu- og félagsmála
- Yfirlit yfir ESB mál í vinnslu sem kunna að varða EES samninginn
Félagsmálaráðuneytið er með sérstakan fulltrúa í Sendiráði Íslands í Brussel sem starfar í raun sem tengiliður milli starfseminnar í Brussel og ráðuneytisins. Hlutverk hans er því m.a. að taka þátt í vinnuhópum um ofangreind málefni innan EFTA og sitja sérfræðingafundi ESB. Markmiðið er að upplýsa Félagsmálaráðuneytið og viðeigandi undirstofnanir þess um stöðu mála hverju sinni og að fylgja eftir hagsmunum Íslands í þessum málaflokkum.
Fulltrúi félagsmálaráðuneytisins í sendiráðinu er:
S: +32 (0)2 238 50 17
Fax: +32 (0)2 230 69 38

