EES-samningurinn
Sameiginlega EES-nefndin
(e. EEA Joint Committee)
Meginsamstarfsvettvangur EFTA-ríkjanna innan EES og Evrópusambandsins er sameiginlega EES-nefndin en hlutverk hennar er að tryggja virka framkvæmd samningsins. Í henni eiga sæti fulltrúar Íslands, Liechtensteins og Noregs annars vegar og framkvæmdastjórnarinnar hins vegar. Aðildarríki ESB geta mætt á fundi nefndarinnar en taka að öðru jöfnu ekki til máls. Nefndin hittist einu sinni í mánuði og er aðalviðfangsefni hennar að taka ákvarðanir um að taka upp ESB-gerðir í EESsamninginn. Einnig er nefndin vettvangur þar sem samningsaðilar hafa samráð um öll þau mál á grundvelli samningsins sem valda erfiðleikum.Sameiginlega EES-nefndin hefur sér til aðstoðar fimm undirnefndir sem eru þær sömu og eru fastanefnd EFTA til aðstoðar.
Tekið úr: Handbók Stjórnarráðsins um EES, Utanríkisráðuneytið, 2003.

