Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



EES-samningurinn

Eftirlitsstofnun EFTA

(e. EFTA Surveillance Authority - ESA)

Sú stofnun, sem hefur eftirlit með því að skuldbindingar samkvæmt EES-samningnum séu efndar og að aðgerðir aðildarríkjanna á sviði samkeppni séu lögmætar er Eftirlitsstofnun EFTA, ESA. ESA hefur að nokkru á hendi hliðstætt hlutverk og framkvæmdastjórn ESB hvað eftirlitshlutverk varðar. Eftirlitið snýr bæði að því hvernig EES-reglurnar eru innleiddar í íslenskan rétt og hvernig þeim er síðan framfylgt af stjórnvöldum. Að auki hefur ESA mikilvægu hlutverki að gegna varðandi samkeppnismál sem hafa áhrif á viðskipti á Evrópska efnahagssvæðinu þ.e. tryggja réttmæta samkeppni fyrirtækja, og hafa eftirlit með ríkisstyrkjum og opinberum innkaupum. ESA og EFTA-dómstóllinn starfa á grundvelli sérstaks samnings um stofnun eftirlitsstofnunar og dómstóls. Þar er að finna ítarlegar reglur um Eftirlitsstofnun EFTA og dómstólinn. Þannig skal stofnunin vera sjálfstæð og óháð.5 Starfsmenn stofnunarinnar mega hvorki leita eftir né taka við fyrirmælum frá ríkisstjórnum eða öðrum aðilum og ber EFTA-ríkjunum að virða það. ESA getur tekið mál upp að eigin frumkvæði eða vegna kvörtunar frá einhverju EES-ríkjanna, stofnunum ESB eða frá einkaaðilum. Telji stofnunin brotið gegn samningnum getur hún hafið áminningarferli sem getur leitt til þess að höfðað verði mál fyrir EFTA-dómstólnum, sbr. umfjöllun í kaflanum hér á eftir. Brot gegn samningnum geta einnig haft í för með sér sektir sem ESA hefur heimild til að ákvarða. Jafnframt getur ófullnægjandi innleiðing eða brot sem bitna á borgurunum eða lögaðilum hugsanlega leitt til skaðabótaskyldu ríkisins. Stjórn ESA er skipuð þremur mönnum, einum frá hverju EFTA-ríkjanna sem eiga aðild að EES-samningnum. ESA hefur aðsetur í Brussel. Vinnumálið er enska og eiga stjórnvöld að hafa samskipti við ESA á því tungumáli en einstaklingar og lögaðilar mega nota hvaða EES-tungumál sem er.



 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: