Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



EES-samningurinn

Fastanefnd EFTA

(e. EFTA Standing Committee)

Fastanefnd EFTA skipa sendiherrar EFTA-ríkjanna innan EES, þ.e. Íslands, Liechtensteins og Noregs. Meginhlutverk nefndarinnar er að samræma afstöðu EFTA-ríkjanna innan EES gagnvart Evrópusambandinu fyrir fundi í sameiginlegu EES-nefndinni. Nefndin starfar á grundvelli samnings um fastanefnd EFTA-ríkjanna. Fastanefndin hittist að jafnaði einu sinni í mánuði. Fimm undirnefndir og fjöldi vinnuhópa eru fastanefnd EFTA til aðstoðar og undirbúa þau mál sem fara til afgreiðslu hjá fastanefnd EFTA og sameiginlegu EES-nefndinni. Undirnefndirnar

hittast að jafnaði 10 sinnum á ári. Flest ráðuneyti hafa greiðastan aðgang að fastanefnd EFTA í gegnum vinnuhópana sem skipaðir eru embættismönnum og sérfræðingum á hinum ýmsu sérsviðum EES-samningsins. Fastanefnd EFTA hefur sér til aðstoðar fimm undirnefndir (e. subcommittees). Fyrsta undirnefndin fjallar um mál á sviði frjáls vöruflæðis, önnur undirnefnd um frjálst flæði fjármagns og þjónustu, þriðja nefndin um frjálsa för fólks, fjórða nefndin um þverfagleg málefni og samstarfsverkefni og fimmta nefndin fjallar um lagaleg og stofnanaleg mál. Undirnefndunum til aðstoðar er svo fjöldi vinnuhópa sem fjalla um gerðir á fyrri stigum. Í þessum undirnefndum og vinnuhópum sitja embættismenn úr stjórnkerfi EFTA-ríkjanna innan EES, m.a. fulltrúar ráðuneytanna sem starfa í Sendiráði Íslands í Brussel. Undirnefndirnar funda annars vegar sem undirnefndir fastanefndarinnar og hins vegar sem undirnefndir sameiginlegu EES-nefndarinnar og þá með fulltrúum framkvæmdarstjórnar ESB.

Heimild: Handbók Stjórnarráðsins um EES, Utanríkisráðuneytið, 2003

 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: