Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Fréttir og viðburðir


Viðskiptaráðherra heimsækir Lúxemborg og Brussel

23.1.2008

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, heimsótti Brussel og Lúxemburg, dagana 21. til 23. janúar s.l. Í ferðinni átti ráðherrann fundi með þremur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins á fagsviðum stofnunarinnar, Neelie Kroes, framkvæmdastjóra á sviði samkeppnismála, Meglena Kuneva framkvæmdastjóra á sviði neytendamála og Charlie McCreevy framkvæmdastjóra á sviði innri markaðar og þjónustu.

Í framhaldi af fundi Björgvins með Neelie Kroes þáði hún boð hans um að koma til Íslands í júlí n.k. og taka þátt í ráðstefnu um samkeppnismál.

Þá tók ráðherrann þátt í morgunverðarfundi um stefnu ESB í neytendamálum og heimsótti skrifstofu EFTA og ESA í Brussel. Ennfremur heimsótti ráðherrann höfuðstöðvar íslenskra banka í Lúxemborg.

Heimsókninni lauk með óformlegum fundi í boði sendiherra Íslands með háttsettum embættismönnum og sérfræðingum á sviði gjaldmiðlamála.



 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: