Íslensk birta yfir Höfuðstöðvum ESB
- hvað gerir þjóð að þjóð?
Þann 6. desember sl. opnaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ljósmyndasýningu með verkum Páls Stefánssonar í Berlaymont, höfuðstöðvum framkvæmdastjórnar ESB. Heiðursgestur opnunarinnar var Joe Borg, framkvæmdastjóri sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu en hana sóttu tæplega 150 manns.
Sendiráðið í Brussel stendur að baki sýningunni en hún samanstendur af stórum náttúruljósmyndum frá Íslandi. Valdi Páll myndirnar eftir þemanu, “Hvað gerir þjóð að þjóð” eða “What makes a nation” eins og sýningin heitir á ensku. Tengir Páll saman aðstæðurnar í íslenskum veruleika við andstæðurnar sem einkenna íslenskt landslag og á lifandi og skemmtilegan hátt. “Þessar myndir gefa að mínu mati ákveðinn tón” segir Páll um sýninguna. “Þær sýna land sem er í mótun, nýtt land eins og sú þjóð sem býr hér norður undir heimskautsbaug, en er bara í 5 tíma fjarlægð frá New York, og tæplega þriggja tíma fjarlægð frá London”?
Um 2000-2500 manns fara um svæði sýningarinnar daglega, bæði starfsmenn framkvæmdastjórnarinar og þeir fjölmörgu sem koma að starfsemi hennar. Því er ljóst að Ísland fær mjög góða athygli á meðan sýningunni stendur. Sýningin hefur verið vel kynnt hjá framkvæmdastjórninni t.d. prýða plaköt sýningarinnar 72 byggingar hennar og kynningarefni hefur verið sent út til 25.000 starfsmanna hennar.
“Ástæðan fyrir því að við réðumst í þetta verkefni er ekki síst vegna þess til hversu stórs og alþjóðlegs hóps hægt er að ná til hér í Berlaymont” sagði Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel, um sýninguna. “Verkefnið nýtist einnig vel til að kynna íslensku hátíðina Iceland on the Edge sem hefst í febrúar og varir til júní á næsta ári og framboð Íslands
til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna en sýningin er m.a. styrkt af framboðinu til að kynna það.”
Sendiráðið stendur að auki fyrir kynningarbás með ýmsu efni um Ísland á meðan sýningunni stendur. Síðast en ekki síst verða sýndar þrjár íslenskar heimildamyndir í tengslum við sýninguna í kvikmyndasal Berlaymont en það eru myndirnar Gargandi Snilld, Reiði Guðanna og Hestasaga sem allar hafa hlotið frábæra dóma á kvikmyndahátíðum.

