Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hittir framkvæmdastjóra í Brussel
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Jón Sigurðsson kom í tveggja daga heimsókn til Brussel,dagana 8. og 9. febrúar s.l. Ráðherrann átti fund með tveimur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, þar sem rædd voru stefnumál og þróun Evrópusambandsins á sviðum fyrirtækja, iðnaðar og samkeppni.
Á fundi ráðherrans með Günter Verheugen, framkvæmdastjóra sem fer með málefni fyrirtækja og iðnaðar, var rætt um nýsköpun, samkeppnishæfni og í því samhengi málefni smárra og meðalstórra fyrirtækja. Þá var rætt um nýlega stefnumótun Evrópusambandsins í orkumálum, hinn svokallaða nýja orkupakka Evrópusambandsins. Stækkun EES-samningsins til Búlgaríu og Rúmeníu var rædd ásamt stjórnarskrá Evrópusambandsins.
Ráðherrann átti einnig fund með Neelie Kroes, framkvæmdastjóra samkeppnismála, þar sem rætt var um þróun samkeppnismála, rannsókn framkvæmdastjórnarinnar á orkumarkaðnum og hvernig samkeppni hefur þróast á þeim markaði og jafnframt um rannsókn á samkeppni á banka- og greiðslukortamarkaði. Þá var rætt um eignarhald í orkufyrirtækjum og kom fram að framkvæmdastjórnin teldi að skilja þurfi á milli eignarhalds fyrirtækja sem framleiða raforku og þeirra sem dreifa raforku.
Í heimsókninni átti ráðherra jafnframt fund með sendiherra Íslands gagnvart Evrópusambandinu, Stefáni Hauki Jóhannessyni. Þá heimsótti ráðherra skrifstofu EFTA í Brussel og Eftirlitsstofnun EFTA og fékk kynning á starfsemi þessara tveggja stofnana.

