Félagsmálaráđherra á ferđ í Brussel
Fundađi m.a. međ ţingkonu á Evrópuţinginu um reglur sem gilda um útsenda starfsmenn
Magnús Stefánsson félagsmálaráđherra sat ásamt sendinefnd fundi í Belgíu í síđustu viku til ađ fara yfir reglur sem gilda um för launţega samkvćmt EES samningnum, ekki síst međ hliđsjón af stćkkun ESB. Jafnframt kynnti hann sér efni nýrrar tilskipunar sem ESB hefur sett um rétt fólk til farar á evrópska efnahagssvćđinu. Í ţessum tilgangi hitti félagsmálaráđherra starfsmenn í sendiráđi Íslands í Brussel sem og sérfrćđinga frá EFTA og ESA
Ţá kynnti ráđherra sér einnig umrćđu sem fariđ hefur fram á vettvangi ESB um reglur sem gilda um útsenda starfsmenn í ţjónustuviđskiptum, en mikil umrćđa hefur fariđ fram um ţau mál á vettvangi ESB ekki síđur en á Íslandi. Ráđherran heimsótti framkvćmdastjórn ESB í ţeim tilgangi og kynnti sér nýlegar leiđbeiningarreglur ESB um framkvćmd tilskipunar um útsenda starfsmenn, sem tekin hefur veriđ upp í EES samninginn.
Félagsmálaráđherra átti einnig fund međ Elisabeth Schroedter, ţingkonu á Evrópuţinginu, sem hefur ađ eigin frumkvćđi tekiđ saman gagnrýni á túlkun framkvćmdastjórnarinnar á reglum um útsenda starfsmenn, og lagt fyrir Evrópuţingiđ.

