Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Fréttir og viðburðir


Árni M. Mathisen og Dalía Grybauskaité
Árni M. Mathisen og Dalía Grybauskaité

Fjármálaráðherra fundar með framkvæmdastjórum ESB

19.10.2006

Fjármálaráðherra, Árni M. Mathisen, átti í gær og dag fundi með þremur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, þeim Joaquín Almunia, sem fer með efnahagsmál, Lasló Kóvaks sem fer með tolla- og skattamál og Dalíu Grybauskaité sem fer með fjármál sambandsins. Tilgangurinn var að ræða stefnumál og þróun sambandsins á þessum sviðum. Auk þess heimsótti hann Eftirlitsstofnun EFTA og fékk kynningu á starfseminni sem felst í að fylgjast með framkvæmd samningsins um evrópska efnahagssvæðið hjá Íslandi, Noregi og Lichenstein.

Á fundinum með Joaquín Almunia var farið yfir þróun efnahagsmála um þessar mundir og horfur á næsta ári og til lengri tíma. Rætt var um skipulagsbreytingar sem aðildarríkin vinna að í samræmi við svokallað Lissabon-ferli til að bæta samkeppnishæfni ríkjanna, en Ísland er þátttakandi í ýmsum verkefnum sem tengjast því. Að lokum ræddu þeir stöðu, þróun og stjórntæki efnahagsmála í ríkjum með tilliti til hvort þau eru aðilar að myntbandalagi Evrópu eða standa utan þess.

Á fundi með Lasló Kóvaks var einkum rætt um hugmyndir um að samræma álagningarstofna vegna skattlagningar fyrirtækja innan sambandsins þótt skattprósentur verði mismunandi eftir ríkjum. Samræming álagningarstofns hefur marga kosti í för með sér þótt að ýmsu þurfi að hyggja og gæti auðveldað litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Íslandi að stunda viðskipi í öðrum löndum og því er nauðsynlegt að fylgjast grannt með og taka þátt í þróunarstarfi á þessu sviði. Einnig ræddu þeir þróun skattlagningar almennt en stefna Evrópusambandsins er að skattar leggist fremur á neyslu en framleiðslustarfsemi.

Á fundi með Dalíu Grybauskaité var rætt um fjárlagagerð og fjárlög Evrópusambandsins sem eru um 1% af vergum þjóðartekjum ríkjanna innan þess og fara að stæstum hluta í styrki við landbúnað og til uppbyggingar í fátækum svæðum innan sambandsins. Fjárhagsáætlun sambandsins fyrir árin 2007-2013 liggur fyrir og myndar ramma um útgjöld þess og er gert ráð fyrir að hún standi óbreytt út tímabilið þótt eitthvað kunni að færast milli ára. Íslendingar taka þátt í ýmsum verkefnum með sambandinu og taka þátt kostnaði við þau. Þar vega þyngst sjöunda rammaáætlun í rannsóknum og framlög í Þróunarsjóð EFTA en Evrópusambandið fer fram á að þau verði aukin í tengslum við breytingar á samningum um Evrópska efnahagssvæði vegna inngöngu Búlgaríu og Rúmeníu í byrjun næsta árs.



 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: