EFTA
EFTA námskeið
Hefðbundið EFTA námskeið verður haldið í Brussel dagana 23. og 24. nóvember 2006. Slík námskeið eru haldin tvisvar á ári og eru ætluð embættismönnum, sérfræðingum alþjóðastofnana, starfsmönnum sveitarfélaga og öðrum sem að Evrópumálum vinna.
Á námskeiðunum er farið yfir EES-samninginn og hvernig staðið er að rekstri hans. Yfirleitt er mikil þátttaka á slíkum námskeiðum og þarf að skrá sig tímanlega til að eiga tryggt sæti.
Nánari upplýsingar á heimasíðu EFTA.

