Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Fréttir og viðburðir


Fréttir og viðburðir

16.6.2008 : Loftslag og jarðvegur

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra tók þátt í ráðstefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um loftslagsbreytingar og jarðveg í Brussel s.l. fimmtudag. Umhverfisráðherra tók þátt í ráðstefnunni í boði Stavros Dimas, umhverfisstjóra Evrópusambandsins. Um 500 manns sóttu ráðstefnuna frá nær öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.

>>>

 

23.4.2008 : Samgönguráðherra í Brussel

Dagana 14-16 apríl var Kristjáns L. Möller, samgönguráðherra, á ferðinni í Brussel. Ráðherrann átti fundi með þremur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, Jacques Barrot varaforseta framkvæmdastjórnarinnar og framkvæmdastjóra fyrir orku- og samgöngumál, Danuta Hubner, framkvæmdastjóra á sviði byggðamála og Vivane Reding framkvæmdastjóra á sviði fjarskipta og upplýsingatækni.

>>>

 

5.3.2008 : Umhverfisráðherra fundar með Stavros Dimas, framkvæmdastjóra umhverfismála

Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra átti fund með Stavros Dimas, umhverfisstjóra Evrópusambandsins, í Brussel hinn 4. mars. >>>
 

29.2.2008 : Dómsmálaráðherra hittir Frattini í Brussel

Björn Bjarnason, dóms og kirkjumálaráðherra, hitti Franco Frattini, varaforseta framkvæmdastjóra Evrópusambandsins sem fer með dóms- og innanríkismál, á fundi í Brussel fimmtudaginn 28. febrúar.

>>>
 

28.2.2008 : Heimsókn utanríkisráðherra til Lúxemborgar og Brussel

Geir H. Haarde, forsætisráðherra, heimsótti Lúxemborg og Brussel, dagana 26. og 27. febrúar s.l. >>>
 

21.2.2008 : Vel heppnað Airwaves í Brussel

Mikil stemning var á tónleikakvöldi Iceland Airwaves í Brussel þann 15. febrúar sl. en kvöldið var var hluti af Iceland on the Edge hátíðinni sem stendur nú yfir í Brussel. Fjórar íslenskar hljómsveitir/listamenn tóku þátt: Ólafur Arnalds, Seabear, Jóhann Jóhannsson og Amiina. Tónleikarnir voru haldnir í BOZAR, stærstu lista- og menningarmiðstöð Belgíu. Um 500 manns sóttu kvöldið og var uppselt.

>>>

 

12.2.2008 : Nýr menningarsjóður Póllands og EES/EFTA-ríkjanna

Nýlega var hleypt af stokkunum nýjum menningarsjóði, sem ætlað er að auka samskipti milli Póllands og EES/EFTA – ríkjanna Íslands, Lichtenstein og Noregs. Sjóðurinn mun starfa árin 2008 til 2010 og hafa til ráðstöfunar um 400 millj. kr., sem deilast á starfstímann. >>>
 

6.2.2008 : Ísland tekur í fyrsta sinn þátt í ferðamálahátíð í Brussel

Frá og með morgundeginum, 7. febrúar til mánudagsins 11. febrúar mun Ísland vera með sérstakan kynningarbás á ferðamálahátíðinni "Vakantiesalon" sem haldin er árlega.

>>>
 

5.2.2008 : Kynning á möguleikum til nýtingu jarðvarma

Möguleikar til nýtingar á jarðhita voru í fyrsta sinn teknir til umræðu á vettvangi Evrópusambandsins á ráðstefnu sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra efndi til í Brussel s.l. föstudag í boði Andris Piebalgs, orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.

>>>
 

31.1.2008 : Yfirlit um starfsemi sendiráðsins í Brussel seinni hluta árs 2007

Yfirlitsskýsla sendiráðssins í Brussel fyrir seinni hluta þessa árs (ágúst – desember 2007) er komin út. >>>
 

28.1.2008 : Ráðstefna í Brussel um endurnýtanlega orku

Iðnaðarráðuneytið efnir til ráðstefnu í Brussel föstudaginn 1. febrúar n.k. í tilefni viku Evrópusambandsins þar sem áhersla er lögð á sjálfbæra orku. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og Andris Piebalgs framkvæmdastjóri orkumála í ESB munu flytja opnunarávarp. >>>
 

25.1.2008 : Evrópumiðstöð Impru á Sjávarútvegssýningunni í Brussel

Dagana 22.- 24. apríl nk. verður sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe í Brussel. Í tengslum við sýninguna skipuleggur Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands svokölluð fyrirtækjastefnumót þar sem íslensk fyrirtæki geta sent inn prófíla um tækninýjungar í sjávarútvegi og fiskiðnaði.

>>>
 

24.1.2008 : Vel heppnaður blaðamannafundur vegna Iceland on the Edge

Um 40 manns sóttu kynningarfund um íslensku hátíðina Iceland on the Edge sem haldin verður í Brussel frá febrúar til júní í nk. Hópurinn samanstóð af lykil blaðamönnum frá öllum helstu fjölmiðlum Belgíu s.s. dagblöðum, tímaritum, sjónvarps- og útvarpsstöðvum.

>>>
 

23.1.2008 : Viðskiptaráðherra heimsækir Lúxemborg og Brussel

Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, heimsótti Brussel og Lúxemburg, dagana 21. til 23. janúar s.l. Í ferðinni átti ráðherrann fundi með þremur framkvæmdastjórum, Neelie Kroes, Meglena Kuneva og Charlie McCreevy.

>>>

 

17.1.2008 : Sjávarútvegs - og landbúnaðarráðherra í Brussel

Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hitti þann 16. janúar Marianne Fischer Boel, framkvæmdastjóra landbúnaðarmála Evrópusambandsins, á fundi í Brussel. Þau ræddu stöðu landbúnaðarmála í alþjóðlegu samhengi og þær breytingar sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins um þessar mundir.

>>>

 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: