Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu

Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00



Fréttir og viðburðir


Fréttir og viðburðir

12.12.2007 : Sendiherra afhendir forseta Sviss trúnaðarbréf

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, afhenti, miðvikudaginn 5. desember 2007, Micheline Calmy-Rey, forseta Sviss, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Sviss með aðsetur í Brussel.

>>>

 

11.12.2007 : Íslensk birta yfir Höfuðstöðvum ESB

Þann 6. desember sl. opnaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ljósmyndasýningu með  verkum  Páls Stefánssonar í Berlaymont, höfuðstöðvum framkvæmdastjórnar   ESB.   >>>
 
Radherra_og_Frattini

12.11.2007 : Dómsmálaráðherra ræðir stöðu Íslands í evrópska samstarfinu um lög- og réttargæslu

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, sat ráðherrafund Schengen-ríkjanna í Brussel á fimmtudag, 8. nóvember. Hann ræddi í tengslum við fundinn við Franco Frattini. >>>
 
EFTA

24.10.2007 : EFTA Starfsþjálfun vorið 2008

EFTA skrifstofan og Þróunarsjóður EFTA bjóða upp á 5 mánaða starfsþjálfun fyrir allt að níu starfsnema frá 1. mars 2008 til 31. júlí 2008. >>>
 
EFTA

22.10.2007 : EFTA námskeið í Brussel

Hefðbundið EFTA námskeið verður haldið í Brussel dagana 22. og 23. nóvember 2007. >>>
 
Sendiherrar Rúmeníu og Íslands

4.10.2007 : Undirritun samnings milli ríkisstjórna Íslands og Rúmeníu um endurviðtöku eigin ríkisborgara og útlendinga

Í dag, 4. október 2007, var undirritaður samningur milli ríkisstjórna Íslands og Rúmeníu um endurviðtöku eigin ríkisborgara og útlendinga.

>>>

 
Utanríkisráðherra og Solana

20.9.2007 : Utanríkisráðherra heimsækir Brussel

Á þriðjudag lauk tveggja daga heimsókn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, til Brussel en þar átti hún fundi með starfsfólki sendiráðs Íslands í Brussel og fastanefndar Íslands í NATO, auk þess að hitta forystufólk NATO og Evrópusambandsins.

>>>

 

21.8.2007 : Per Sanderud nýr forseti stjórnar Eftirlitsstofnunar EFTA.

Í gær, 20. ágúst, tók Per Sanderud við embætti forseta stjórnar Eftirlitsstofnunar EFTA. >>>
 
The Ambassador of Iceland signes the EEA Enlargement Agreement}

27.7.2007 : Samningur um stækkun EES undirritaður

Samningur um þátttöku Rúmeníu og Búlgaríu á Evrópska Efnahagssvæðinu var undirritaður í Brussel 25. júlí s.l. >>>
 

17.7.2007 : Yfirlit um starfsemi sendiráðsins í Brussel fyrrihluta árs 2007

Yfirlitsskýsla sendiráðssins í Brussel fyrir fyrrihluta þessa árs (janúar – júní 2007) er komin út.

>>>

 
The artists with the Icelandic Ambassador

4.7.2007 : Myndlistarsýning í Lúxemborg

Þann 2. júlí var opnuð sýning Katrínar Friðriks og Guðrúnar Benediktu Elíasdóttur í húsakynnum Fortis banka í miðborg Lúxemborgar. >>>
 
amiina

9.5.2007 : Hljómsveitin Amiina heldur tónleika í Brussel

Hljómsveitin Amiina heldur tónleika í Brussel 19. maí n.k í AB (Ancienne Belgique). >>>
 

2.5.2007 : Myndlistarsýning Dominique Ambroise

Dominique Ambroise sýnir í Menningarmiðstöð Woluwe-Saint-Pierre, 93 Avenue Charles Thielemans - 1150 Bruxelles (ráðhús Woluwe-Saint-Pierre). Sýningin er samsett af málverkum frá Íslandi, Belgíu og Frakklandi. Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 3 maí kl. 18:30 og stendur til 12. maí n.k

>>>
 
Svæðabundið samstarf um orkumál

19.4.2007 : Svæðabundið samstarf um orkumál

Þriðjudaginn 17. apríl undirritaði Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, viljayfirlýsingu um svæðabundið samstarf á sviði orkumála. Markmið samstarfsins, sem hlaut nafnið RENREN (Renewable Energy Regional Network), er að koma á virku samstarfi svæða í Evrópu sem búa yfir sérþekkingu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa í þeim tilgangi að stuðla að enn frekari notkun slíkra orkugjafa.

>>>
 
Skjaldarmerki Íslands

27.3.2007 : Endurveiting íslensks ríkisborgararéttar

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á því að frestur til að óska eftir endurveitingu íslensks ríkisborgararéttar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952, sbr. lög nr. 9/2003, rennur út 1. júlí 2007.

>>>

 
Alþingi

13.3.2007 : Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga

Athygli er vakin á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga 12. maí 2007 hefst í sendiráði Íslands í Brussel mánudaginn 19. mars n.k. Hægt er að kjósa í sendiráðinu alla virka daga frá kl. 9:00 til 17:00. Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni Íslands í Lúxemborg á tímabilinu 16. - 18. apríl, 23. - 25. apríl og 2. - 3. maí.  Opnunartími hjá ræðismanninum er 09:00 - 12:00. 

>>>

 
Umhverfisráðherra og Stavros Dimas

2.3.2007 : Umhverfisráðherra hittir framkvæmdastjóra umhverfismála

Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, átti fund með Stavros Dimas ráðherra umhverfismála í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins 28. febrúar 2007.

>>>

 
Umhverfisráðherra ásamt Kyprianou

23.2.2007 : Umhverfisráðherra vill að vísindaleg sjónarmið og rök ráði hjá ESB

Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra átti á þriðjudag 20. febrúar, fund með Markos Kyprianou framkvæmdastjóra sem fer með matvælamál í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Brussel, um öryggi matvæla og mögulega aðild Íslands að Matvælastofnun Evrópu.

>>>
 
EFTA

20.2.2007 : Stækkun EES og þátttaka EFTA ríkjanna í nýjum áætlunum ESB 2007-2013

Opnað hefur verið fyrir móttöku umsókna í flestum nýjum áætlunum ESB fyrir árin 2007-2013 og verður tekið á móti umsóknum næstu mánuði. Framkvæmdastjórn ESB hefur lýst því yfir að tekið verði á móti umsóknum frá aðilum í EFTA ríkjunum og þær metnar á sama grundvelli og umsóknir frá ESB ríkjunum.

>>>

 
Chris Foster og Bára Grímsdóttir

16.2.2007 : Tónleikar í sendiherrabústaðnum í Brussel á Valentínusardag

Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel stóð í samvinnu við EFTA deild Samtaka kvenna í Evrópu (Association Femmes d´Europe) fyrir Valentínusartónleikum hinn 14. febrúar s.l. þar sem Bára Grímsdóttir, söng- og kvæðakona og Chris Forest, söngvari og gítarleikari, fluttu íslensk og ensk þjóðlög.

>>>
 

16.2.2007 : Endurgreiðsla sjúkrakostnaðar í útlöndum

Framkvæmdastjórn ESB hefur opnað nýtt vefsvæði sem veitir greinargóðar upplýsingar um all sem snýr að rétti fólks til endurgreiðslu á heilbrigðiskostnaði í útlöndum.

>>>

 
Heilbrigðisráðherra og ráðuneytisstjori ásamt starfsfólki EFTA og sendiráðs Íslands

14.2.2007 : Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra fundar með fulltrúum EFTA, ESA og sendiráðs Íslands í Brussel

Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sat fundi með starfsmönnum EFTA, ESA og sendiráðs Íslands í Brussel, dagana 12. og 13. febrúar 2007, þar sem fjallað var um ýmis viðfangsefni Evrópusambandsins á svið heilbrigðis- og almannatryggingamála sem eru á leið í EES samninginn eða kunna að varða hann í framtíðinni.

>>>
 

13.2.2007 : Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hittir framkvæmdastjóra í Brussel

Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Jón Sigurðsson kom í tveggja daga heimsókn til Brussel,dagana 8. og 9. febrúar s.l. Ráðherrann átti fund með tveimur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, þar sem rædd voru stefnumál og þróun Evrópusambandsins á sviðum fyrirtækja, iðnaðar og samkeppni.

>>>
 
Landbúnaðarráðherra og Mariann Fischer Boel, framkvæmdastjóri ESB um landbúnaðar- og byggðarmál

12.2.2007 : Landbúnaðarráðherra á fundum í Brussel

Dagana 1. og 2. febrúar s.l. átti Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra fundi með framkvæmdastjórum ESB sem fara með landbúnað, byggðaþróun og heilbrigði matvæla og dýra auk þess sem hann fundaði með forsvarsaðilum frá EFTA og ESA >>>
 
Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra og Stefán Haukur Jóhannsson, sendiherra

7.2.2007 : Félagsmálaráðherra á ferð í Brussel

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sat ásamt sendinefnd fundi í Belgíu í síðustu viku til að fara yfir reglur sem gilda um för launþega samkvæmt EES samningnum, ekki síst með hliðsjón af stækkun ESB.

>>>

 
Utanríkisráðherra og starfsfólk sendiráðs í Brussel

7.2.2007 : Utanríkisráðherra heimsækir sendiráðið

Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra heimsótti sendiráð Íslands í Brussel í lok janúar.

>>>
 

6.2.2007 : Grænbók ESB um leiðir til að draga úr tóbaksreyk

Framkvæmdastjórn ESB kynnti í síðstu viku grænbók um tóbaksvarnir í Evrópu. Markmiðið er að hefja víðþætta umræðu og samráð um leiðir til að draga úr notkun tóbaks í ríkjum Evrópusambandsins og skapa reyklaust umhverfi.

>>>

 

22.1.2007 : Yfirlitsskýrsla sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2006

Nú má finna yfirlitsskýrslu sendiráðsins vegna seinni hluta árs 2006 á heimasíðu sendiráðsins. >>>
 

 


Fax:

+32 (0)2 230 69 38


Opnunartími:

Mán-fös
09:00 - 17:00


Tungumál:

Íslenska, enska, franska, flæmska.


 

Leturstærð: