Sendiráð Íslands í Brussel, Belgíu
Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00
Rond-Point Schuman 11, 1040 Bruxelles - Sími +32 (0)2 238 50 00
Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra tók þátt í ráðstefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um loftslagsbreytingar og jarðveg í Brussel s.l. fimmtudag. Umhverfisráðherra tók þátt í ráðstefnunni í boði Stavros Dimas, umhverfisstjóra Evrópusambandsins. Um 500 manns sóttu ráðstefnuna frá nær öllum aðildarríkjum Sameinuðu þjóðanna.
Dagana 14-16 apríl var Kristjáns L. Möller, samgönguráðherra, á ferðinni í Brussel. Ráðherrann átti fundi með þremur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, Jacques Barrot varaforseta framkvæmdastjórnarinnar og framkvæmdastjóra fyrir orku- og samgöngumál, Danuta Hubner, framkvæmdastjóra á sviði byggðamála og Vivane Reding framkvæmdastjóra á sviði fjarskipta og upplýsingatækni.
Björn Bjarnason, dóms og kirkjumálaráðherra, hitti Franco Frattini, varaforseta framkvæmdastjóra Evrópusambandsins sem fer með dóms- og innanríkismál, á fundi í Brussel fimmtudaginn 28. febrúar.
>>>Mikil stemning var á tónleikakvöldi Iceland Airwaves í Brussel þann 15. febrúar sl. en kvöldið var var hluti af Iceland on the Edge hátíðinni sem stendur nú yfir í Brussel. Fjórar íslenskar hljómsveitir/listamenn tóku þátt: Ólafur Arnalds, Seabear, Jóhann Jóhannsson og Amiina. Tónleikarnir voru haldnir í BOZAR, stærstu lista- og menningarmiðstöð Belgíu. Um 500 manns sóttu kvöldið og var uppselt.
Frá og með morgundeginum, 7. febrúar til mánudagsins 11. febrúar mun Ísland vera með sérstakan kynningarbás á ferðamálahátíðinni "Vakantiesalon" sem haldin er árlega.
>>>Möguleikar til nýtingar á jarðhita voru í fyrsta sinn teknir til umræðu á vettvangi Evrópusambandsins á ráðstefnu sem Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra efndi til í Brussel s.l. föstudag í boði Andris Piebalgs, orkumálastjóra framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
>>>Dagana 22.- 24. apríl nk. verður sjávarútvegssýningin European Seafood Exposition og Seafood Processing Europe í Brussel. Í tengslum við sýninguna skipuleggur Evrópumiðstöð Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands svokölluð fyrirtækjastefnumót þar sem íslensk fyrirtæki geta sent inn prófíla um tækninýjungar í sjávarútvegi og fiskiðnaði.
>>>Um 40 manns sóttu kynningarfund um íslensku hátíðina Iceland on the Edge sem haldin verður í Brussel frá febrúar til júní í nk. Hópurinn samanstóð af lykil blaðamönnum frá öllum helstu fjölmiðlum Belgíu s.s. dagblöðum, tímaritum, sjónvarps- og útvarpsstöðvum.
>>>Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, heimsótti Brussel og Lúxemburg, dagana 21. til 23. janúar s.l. Í ferðinni átti ráðherrann fundi með þremur framkvæmdastjórum, Neelie Kroes, Meglena Kuneva og Charlie McCreevy.
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hitti þann 16. janúar Marianne Fischer Boel, framkvæmdastjóra landbúnaðarmála Evrópusambandsins, á fundi í Brussel. Þau ræddu stöðu landbúnaðarmála í alþjóðlegu samhengi og þær breytingar sem unnið er að á vettvangi Evrópusambandsins um þessar mundir.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, afhenti, miðvikudaginn 5. desember 2007, Micheline Calmy-Rey, forseta Sviss, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Sviss með aðsetur í Brussel.
Í dag, 4. október 2007, var undirritaður samningur milli ríkisstjórna Íslands og Rúmeníu um endurviðtöku eigin ríkisborgara og útlendinga.
Á þriðjudag lauk tveggja daga heimsókn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, til Brussel en þar átti hún fundi með starfsfólki sendiráðs Íslands í Brussel og fastanefndar Íslands í NATO, auk þess að hitta forystufólk NATO og Evrópusambandsins.
Yfirlitsskýsla sendiráðssins í Brussel fyrir fyrrihluta þessa árs (janúar – júní 2007) er komin út.
Dominique Ambroise sýnir í Menningarmiðstöð Woluwe-Saint-Pierre, 93 Avenue Charles Thielemans - 1150 Bruxelles (ráðhús Woluwe-Saint-Pierre). Sýningin er samsett af málverkum frá Íslandi, Belgíu og Frakklandi. Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 3 maí kl. 18:30 og stendur til 12. maí n.k
>>>
Þriðjudaginn 17. apríl undirritaði Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra, viljayfirlýsingu um svæðabundið samstarf á sviði orkumála. Markmið samstarfsins, sem hlaut nafnið RENREN (Renewable Energy Regional Network), er að koma á virku samstarfi svæða í Evrópu sem búa yfir sérþekkingu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa í þeim tilgangi að stuðla að enn frekari notkun slíkra orkugjafa.
>>>
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á því að frestur til að óska eftir endurveitingu íslensks ríkisborgararéttar samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum um íslenskan ríkisborgararétt nr. 100/1952, sbr. lög nr. 9/2003, rennur út 1. júlí 2007.
Athygli er vakin á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna Alþingiskosninga 12. maí 2007 hefst í sendiráði Íslands í Brussel mánudaginn 19. mars n.k. Hægt er að kjósa í sendiráðinu alla virka daga frá kl. 9:00 til 17:00. Hægt verður að kjósa hjá ræðismanni Íslands í Lúxemborg á tímabilinu 16. - 18. apríl, 23. - 25. apríl og 2. - 3. maí. Opnunartími hjá ræðismanninum er 09:00 - 12:00.
Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, átti fund með Stavros Dimas ráðherra umhverfismála í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins 28. febrúar 2007.
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra átti á þriðjudag 20. febrúar, fund með Markos Kyprianou framkvæmdastjóra sem fer með matvælamál í Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins í Brussel, um öryggi matvæla og mögulega aðild Íslands að Matvælastofnun Evrópu.
>>>
Opnað hefur verið fyrir móttöku umsókna í flestum nýjum áætlunum ESB fyrir árin 2007-2013 og verður tekið á móti umsóknum næstu mánuði. Framkvæmdastjórn ESB hefur lýst því yfir að tekið verði á móti umsóknum frá aðilum í EFTA ríkjunum og þær metnar á sama grundvelli og umsóknir frá ESB ríkjunum.
Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Brussel stóð í samvinnu við EFTA deild Samtaka kvenna í Evrópu (Association Femmes d´Europe) fyrir Valentínusartónleikum hinn 14. febrúar s.l. þar sem Bára Grímsdóttir, söng- og kvæðakona og Chris Forest, söngvari og gítarleikari, fluttu íslensk og ensk þjóðlög.
>>>Framkvæmdastjórn ESB hefur opnað nýtt vefsvæði sem veitir greinargóðar upplýsingar um all sem snýr að rétti fólks til endurgreiðslu á heilbrigðiskostnaði í útlöndum.
Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sat fundi með starfsmönnum EFTA, ESA og sendiráðs Íslands í Brussel, dagana 12. og 13. febrúar 2007, þar sem fjallað var um ýmis viðfangsefni Evrópusambandsins á svið heilbrigðis- og almannatryggingamála sem eru á leið í EES samninginn eða kunna að varða hann í framtíðinni.
>>>Iðnaðar- og viðskiptaráðherra Jón Sigurðsson kom í tveggja daga heimsókn til Brussel,dagana 8. og 9. febrúar s.l. Ráðherrann átti fund með tveimur framkvæmdastjórum Evrópusambandsins, þar sem rædd voru stefnumál og þróun Evrópusambandsins á sviðum fyrirtækja, iðnaðar og samkeppni.
>>>
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra sat ásamt sendinefnd fundi í Belgíu í síðustu viku til að fara yfir reglur sem gilda um för launþega samkvæmt EES samningnum, ekki síst með hliðsjón af stækkun ESB.
Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra heimsótti sendiráð Íslands í Brussel í lok janúar.
>>>Framkvæmdastjórn ESB kynnti í síðstu viku grænbók um tóbaksvarnir í Evrópu. Markmiðið er að hefja víðþætta umræðu og samráð um leiðir til að draga úr notkun tóbaks í ríkjum Evrópusambandsins og skapa reyklaust umhverfi.
Forráðamenn Gaasbeek kastala, hafa nú skipulagt sýningu á norrænu jólahaldi með þátttöku Íslands, Noregs, Finnlands, Svíþjóðar og Danmerkur.
>>>
Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra var á ferð í Brussel í liðinni viku í tilefni af formlegri opnun skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fjármálaráðherrar aðildarríkja EFTA og Evrópusambandsins ræddu orkumál á sameiginlegum fundi sínum í Brussel í dag. Björn Bjarnason. dóms- og kirkjumálaráðherra, sat fundinn fyrir Íslands hönd.
Dagana 8. nóvember til 10. desember 2006 heldur belgíski ljósmyndarinn Nicolas Springael sýningu í Brussel á ljósmyndum sem hann hefur tekið á Íslandi
>>>
Íslenskuskólinn er skóli á netinu fyrir íslensk börn og foreldra þeirra sem eru búsett erlendis. Í skólanum er áhersla lögð á íslenskukennslu, en aðrar námsgreinar fléttast að einnig inn í námið.
Útgáfa nýrra íslenskra vegabréfa með lífkennaupplýsingum hefst 17. maí nk. Í nýju vegabréfunum verður örflaga og í henni verða varðveittar upplýsingar unnar úr stafrænni mynd sem tekin verður af umsækjanda vegabréfsins, einnig munu verða varðveitt í örflögunni fingraför vegabréfshafa.
>>>Framkvæmdastjórn ESB kynnti í júlí 2004 tillögu um nýja áætlun á sviði vinnu og félagsmála – PROGRESS 2007-2013. Megintilgangur áætlunarinnar er að styðja fjárhagslega við ýmis viðfangsefni á þeim sviðum vinnu og félagsmála sem Evrópusambandið leggur til að unnið verði að, en sú forgangsröðun birtist m.a. félagsmálastefnu sambandsins og tekur mið af Lissabonáætlun ESB.
Hefðbundið EFTA námskeið haldið í Brussel dagana 15. og 16. júní 2006. Slík námskeið eru haldin tvisvar á ári og eru ætluð embættismönnum, sérfræðingum alþjóðastofnana, starfsmanna sveitarfélaga og öðrum sem að Evrópumálum vinna.