Austurríki
Austurríki
Sendiráð Íslands í Vín hóf starfsemi sína 7. maí 2001 en löndin hafa verið í stjórnmálasambandi síðan 20. júlí 1964.
Aðalræðismaður Íslands í Vín er Dr. Cornelia Schubrig, ræðismaður er Hr. Alfred Schubrig og vararæðismaður er Ms Elisabeth Schubrig. Þau hafa öll aðsetur í Vín.
Aðalræðismaður Íslands í Salzburg er Hr. Erich Eibl og ræðismaður Hr. Erik Eibl. Hafa þeir báðir aðsetur í Vín.
Nánari upplýsingar um ræðismenn Íslands í Austurríki
|
Almennar upplýsingar |
|
|
|
|
|
Stærð og staðsetning |
Mið-Evrópa; 83,870 ferkílómetrar. |
|
Nágrannalönd |
Tékkland, Þýskaland, Ungverjaland, Ítalía, Liechtenstein, Slóvakía, Slóvenía, Sviss. |
|
Loftslag |
Temprað; rigningasamir og kaldir vetur, snjókoma á láglendi og í fjallahéruðum; fremur hlý sumur með tíðum úrkomum. |
|
Strandlengja/haf |
- (landlukt). |
|
Landslag |
Fjallendi í vestur- og suður-hluta landsins (Alpar), flatlendi og láglegndi í norð- og norð-austur hluta landsins. |
|
Hæsti og lægsti punktur |
Lægsti punktur: Neusiedler See 115 m. |
|
Náttúruauðlindir |
Olía, kol, brúnkol, timbur, járn, kopar, zink, antimony, magnesíum, tungsten (wolfam), granít, salt, vetnisorka. |
|
Landnýting |
Ræktanlegt land: 16.59% |
|
Náttúruhamfarir |
Jarðskriður, snjóflóð, jarðskjálftar. |
|
|
|
|
|
|
|
Íbúar |
|
|
|
|
|
Fólksfjöldi |
8,192,880 (júlí 2006). |
|
Fólksfjölgun |
0.09% (2006). |
|
Lífslíkur við fæðingu |
Meðaltal: 79.07 ár |
|
Þjóðernishópar |
Austurríkismenn 91.1%, íbúar fyrrum sambandsríkis Júgóslavíu 4% (Króatar, Slóvenar, Serbar, and Bosníumenn), Tyrkir 1.6%, Þjóðverjar 0.9%, aðrir 2.4% (skv. könnun 2001). |
|
Trúarbrögð |
Rómversk-kaþólskir 73.6%, mótmælendur 4.7%, Islam 4.2%, önnur trúarbrögð 3.5%, ótilgreint 2%, trúleysingjar 12% (skv. könnun 2001). |
|
Tungumál |
Þýska (opinbert tungumál Austurríkis), slóvenska (einnig opinbert tungumál í héraðinu Carinthia), króatíska (einnig opinbert tungumál í héraðinu Burgenland), ungverska (einnig opinbert tungumál í héraðinu Burgenland). |
|
|
|
|
|
|
|
Ríkisstjórn og stjórnsýsla |
|
|
|
|
|
Stjórnarfar |
Sambandslýðveldi. |
|
Höfuðborg |
Vín. |
|
Stjórnunareiningar |
Níu héruð (Bundesländer); Burgenland, Kärntern (Carinthia), Niederoesterreich, Oberoesterreich, Salzburg, Steiermark (Styria), Tirol, Vorarlberg, Wien (Vín). |
|
Sjálfstæði |
17. september 1156 (stofnun hertogadæmisins Austurríkis); |
|
Þjóðhátíðardagur |
26. október (1955) –fagnar endalokum hernáms, endurreisnar þjóðlegs fullveldis og setningu laga um varanlegt hlutleysi (Statsfertrag). |
|
Stjórnarskrá |
Sett 1920; endurskoðuð 1929 (endurreist 1 maí 1945). |
|
Lagakerfi |
Einkamálaréttur; stjórnlagadómstóll yfir lagasetningarvaldi; aðskildur hæstiréttur fyrir stjórnsýsluákærur; undir lögsögu Alþjóðadómstólsins (ICJ). |
|
Kostningaréttur |
Allir ríkisborgarar 18 ára og eldri. |
|
Framkvæmdarvald |
oddviti ríkis: Heinz Fischer forseti (síðan 8. júlí 2004). ríkisstjórn: skipuð af forseta eftir tilmælum kanslara. kosningaferli: forseti kjörinn með beinum hlutfallskosningum til 6 ára; síðustu forsetakosningar fóru fram 25. apríl 2004 og næstu forsetakosningar verða í apríl 2010; kanslarinn er skv. hefð skipaður af forseta frá flokki sigurvegara í þingkosningum; aðstoðarkanslari er skipaður af forseta eftir tilmælum kanslara. Kosningaúrslit 2006 –þingkosningar: Þjóðarflokkurinn (ÖVP) 34,2%; Jafnaðarmannaflokkurinn (SPÖ) 35,7%; Frelsisflokkurinn (FPÖ) 11,2%; Græningjar (Grüne)10,5%; Bandalag um framtíð Austurríkis (BZÖ) 4,2%: aðrir smáflokkar 4%.
Núverandi ríkisstjórn: Samsteypustjórn VPÖ og BZÖ. Stjórnarviðræður í kjölfar þingkostninga 2006 standa enn yfir. |
|
Löggjafarvald |
Tvær þingdeildir sem samanstanda af sambandsþingi, Bundersrat (62 héraðsbundin þingsæti; kjörtímabil 5-6 ár) og þjóðþingi, Nationalrat (183 þingsæti; þingmenn kjörnir með beinni meirihlutakostningu til 4 ára.) Kosningar: síðast haldnar 1. október 2006 (næstu kostningar haustið 2010). Kosningaúrslit 2006 –þingkosningar: Þjóðarflokkurinn (ÖVP) 34,2%; Jafnaðarmannaflokkurinn (SPÖ) 35,7%; Frelsisflokkurinn (FPÖ) 11,2%; Græningjar (Grüne)10,5%; Bandalag um framtíð Austurríkis (BZÖ) 4,2%: aðrir smáflokkar 4%. |
|
Dómsvald |
Fjögur héraðsbundin dómsstig einkamálaréttar með hæstarétt (Oberster Gerichtshof) sem æðsta dómsstig. Að auki stjórnsýsludómstóll (Verwaltungsgerichtshof) og stjórnlagadómstóll (Verfassungsgerichtshof). |
|
Helstu stjórnmálaflokkar |
-Þjóðarflokkurinn (Österreichische Volkspartei, ÖVP), formaður Wolfgang Schuessel. |
|
Þáttaka Austurríkis í alþjóðasamtökum og stofnunum. |
ACCT (áheyrnaraðild), AfDB, AsDB, Australia Group, BIS, BSEC (áheyrnaraðild), CE, CEI, CERN, EAPC, EBRD, EIB, EMU, ESA, EU, FAO, G- 9, IADB, IAEA, IBRD, ICAO, ICC, ICCt, ICFTU, ICRM, IDA, IEA, IFAD, IFC, IFRCS, ILO, IMF, IMO, Interpol, IOC, IOM, IPU, ISO, ITU, MIGA, MINURSO, NAM (gestaaðild), NEA, NSG, OAS (áheyrnaraðild), OECD, OIF (áheyrnaraðild), OPCW, OSCE, Paris Club, PCA, PFP, UN, UNCTAD, UNDOF, UNESCO, UNFICYP, UNHCR, UNIDO, UNMEE, UNMIS, UNOMIG, UNTSO, UPU, WCL, WCO, WEU (áheyrnaraðild), WFTU, WHO, WIPO, WMO, WToO, WTO, ZC |
|
|
|
|
Efnahagur |
|
|
|
|
|
Þjóðarframleiðsla (GDP: official exchange rate) |
$293.4 billjónir (2005). |
|
Hagvöxtur |
1.9% (2005). |
|
Þjóðarframleiðsla á mann |
$32,700 (2005). |
|
Þjóðarframleiðsla eftir atvinnuvegum |
Landbúnaður: 1.8% |
|
Vinnuafl |
3.49 milljónir (2005). |
|
Vinnuafl eftir atvinnuvegum |
Landbúnaður: 3% |
|
Atvinnuleysishlutfall |
5.2% (2005). |
|
Hlutfall undir fátækrarmörkum |
5.9% (2004). |
|
Heimilistekjur (%) |
Lægstu 10%: 3.3% |
|
Verðbólga |
2.3% (2005). |
|
Fjárfestingar af þjóðarframleiðslu |
20.8% (2005). |
|
Fjárlög ríkisins |
Tekjur: $148.6 billjón |
|
Skuldir þjóðarbús af þjóðarframleiðslu |
65.1% (2005). |
|
Landbúnaðarframleiðslu -vörur |
Korn, kartöflur, sykurrófur, vín, ávextir, mjólkurvörur, nautgripir, svín, alifuglar, timbur. |
|
Iðnaður |
Byggingar- og vélaiðnaður, bifreiða- og varahlutaiðnaður-, matvælaiðnaður, málma- og efnaiðnaður, timbur- og pappírsiðnaður, samskipta- og ferðamálaiðnaður. |
|
Útflutningur f.o.b. |
$122.5 billjón (2005). |
|
Útflutningsvörur |
Tækjabúnaður og vara, ökutæki og varahlutir, pappír og pappi, málmvara, efnavara, járn og stál, textíl og fatnaður, matvara. |
|
Útflutningslönd |
Þýskaland 31.2%, Ítalía 8.7%, Bandaríkin 5.8%, Sviss 5.2%, Frakkland 4.2% (2005). |
|
Innflutningur f.o.b. |
$118.8 billjón (2005). |
|
Innflutningsvörur |
Tækjabúnaður og vara, ökutæki, efnavara, málmar, olía og olíuvörur, matvara. |
|
Innflutningslönd |
Þýskaland 45.9%, Ítalía 6.6%, Sviss 4.5% (2005). |
|
Gjaldmiðill |
Evra (EUR). |
Þessar upplýsingar voru teknar af síðu bandarísku leyniþjónustunnar, CIA.
https://www.cia.gov/cia/publications/factbook
Tenglar:

