UNOV
Skrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Vín (UNOV)
Starfsemi Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg lýtur sérstaklega að afbrota- og fíkniefnavörnum en á síðustu árum hefur barátta Sameinuðu þjóðanna gegn afbrotum og skipulagðri glæpastarfsemi orðið æ mikilvægari. Sérstök skrifstofa Sameinuðu þjóðanna að fíkniefna- og glæpavörnum (United Nations Office on Drugs and Crime, UNODC) er staðsett í Vínarborg.
Á vettvangi afbrotavarnanefndar Sameinuðu þjóðanna og fíkniefnanefndar Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg fer fram stefnumótandi vinna á sviði alþjóðlegra aðgerða gegn skipulagðri glæpastarfsemi og ólöglegri verslun með fíkniefni. Jafnframt vinnur skrifstofa Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg að aðgerðum til að stemma stigu við hryðjuverkastarfsemi og spillingu.

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti þann 28. júlí 2004 Antonio Maria Costa, framkvæmdastjóra skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg (UNOV), trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá skrifstofu Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg.


