Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



ÖSE/OSCE

Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE/OSCE)

ÖSE gegnir mikilvægu hlutverki við eflingu öryggis, mannréttinda, lýðræðis og átakavarna í aðildarríkjunum sem eru fimmtíu og sex talsins eftir nýlega aðild Svartfjallalands sem sjálfsstæðs ríkis. Innan stofnunarinnar sem staðsett er í Vín fer fram reglubundið samráð á sviði mannréttindamála, lýðræðis, réttinda minnihlutahópa, auk öryggis- og afvopnunarmála. Einnig má nefna víðtækt kosningaeftirlit á vegum stofnunarinnar í aðildarríkjunum. Öll ríki Evrópu eiga aðild að ÖSE auk Bandaríkjanna, Kanada, Kasakstan, Kirgisía, Tadsjikistan, Túrkmenistan og Úsbekistan.

Með framlagi stofnunarinnar á ofangreindum sviðum, ekki síst með starfi átján sendinefnda ÖSE á vettvangi (OSCE missions) í aðildarríkjunum, gegnir ÖSE þýðingarmiklu hlutverki við að tryggja stöðugleika og festa lýðræði í sessi. Ísland hefur á vettvangi ÖSE lagt sérstaka áherslu á vernd mannréttinda og baráttuna gegn mansali auk baráttu stofnunarinnar gegn hryðjuverkum.

ÖSE - Afhending trúnaðarbréfs

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti þann 17. ágúst 2004 Jan Kubis, þáverandi framkvæmdastjóra Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) í Vínarborg, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu.

www.osce.org