Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



IAEA

Alþjóðakjarnorkumálastofnunin (IAEA)

Starfsemi Alþjóðakjarnorkumálastofnuninnar í Vínarborg miðar að því að auka öryggi og eftirlit með nýtingu kjarnorku og geislavirkra efna í friðsamlegum tilgangi í aðildarríkjunum sem eru 137 talsins (2005).

Á vettvangi stofnunarinnar fer fram margvíslegt tæknilegt og vísindalegt samstarf í þágu aukins öryggis á þessu sviði. Stofnunin sinnir þróun lagalega bindandi alþjóðasamninga um öryggi vegna friðsamlegrar nýtingu kjarnorku og geislavirkra efna auk þess að vinna að fjölþættum aðgerðum gegn smygli og þjófnaði á geislavirkum efnum og úrgangi. Einnig má nefna starf IAEA sem miðar að því að efla tækniþekkingu og kunnáttu í þróunarríkjunum, vegna notkunar geislunar m.a. í læknisfræði, landbúnaðarframleiðslu og iðnaði.

IAEA - Afhending trúnaðarbréfs

Sveinn Björnsson, sendiherra, afhenti þann 20. ágúst 2004 Mohamed EIBaradei, framkvæmdastjóra Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) í Vínarborg, trúnaðarbréf sitt sem fastafulltrúi Íslands hjá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni.

www.iaea.org

 

Ræður:

Ræða Hjálmars W. Hannessonar, sendiherra og fastafulltrúa Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum, í umræðu Allsherjarþings S.þ. um skýrslu Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (á ensku).
http://www.utanrikisraduneyti.is/frettaefni/ymis-erindi/nr/3249