Kór Langholtskirkju heldur tónleika kl. 20:00, 3. júní nk. í Minoritenkirche í Vín
Kirkjukór Langholtskirkju var stofnađur áriđ 1953 og hefur starfađ međ núverandi hćtti frá 1973. Kórinn hefur flutt öll stóru verkin eftir Bach og sviđssetning kórsins á Jóhannesarpassíunni eftir Bach áriđ 1995 vakti mikla athygli. Yfir áramótin 1999-2000 flutti kórinn Jólaóratoríuna Bachs í sex messum frá jóladegi til ţrettánda eins og Bach gerđi sjálfur.
Auk ţess hefur kórinn flutt fjölda annara stórverka m.a. „Petite Messe solenelle“ eftir Rossini, „Ein Deutsches Requiem“ eftir Brahms, „Messías“ eftir Händel, „Messe solenelle“ eftir Beethoven, „Sköpunina“ og messur eftir Haydn, „Requiem“ og messur eftir Mozart og „Brúđkaupiđ“ eftir Stravinski. Kórinn flytur reglulega ný íslensk verk og hefur fengiđ tónskáld til ađ semja fyrir sig. Hann hefur fariđ í fjöldamargar tónleikaferđir m.a. til Norđurlandanna, Miđ- og Suđur- Evrópu, Ísraels ţar sem hann flutti Messías eftir Händel, Kanada og Bandaríkjanna og Englands ţar sem hann flutti m.a. messu í h-moll eftir Bach í Barbican tónleikahöllinni međ ensku kammersveitinni.
Kórinn hefur gefiđ út fjölda af hljómplötum og geisladiskum m.a. „Land míns föđur“, „An Anthology of Icelandic Choir Music“, „Jóhannesarpassían“ eftir Bach, „Barn er oss fćtt“ og „Ísland er lýđveldi“.
Áriđ 2003 frumflutti kórinn Guđbrandsmessu sem Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi fyrir kórinn í tilefni 50 ára afmćlis hans.
Jón Stefánsson
lauk kantorsprófi undir handleiđslu dr. Róberts A. Ottóssonar en einleikaraprófi í orgelleik hjá dr. Páli Ísólfssyni. Framhaldsnám sótti hann í Tónlistarháskólann í München hjá prófessor Karli Richter og síđar viđ Tónlistarháskólann í Vín hjá prófessor Michael Radulescu. Jón hefur veriđ organisti og kórstjóri í Langholtskirkju nćr óslitiđ síđan 1964. Kór Langholtskirkju hefur vaxiđ og dafnađ undir hans stjórn. Auk ţess ađ stjórna Kór Langholtskirkju hefur hann veriđ gestastjórnandi hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, stjórnađ nokkrum óperum í Íslensku óperunni og ballettinum Giselle viđ Ţjóđleikhúsiđ. Áriđ 1991 stofnađi Jón Gradualekór Langholtskirkju ,sem er barna- og unglingakór, sem hefur skipađ sér í rađir bestu kóra sinnar tegundar hérlendis. Áriđ 2000 stofnađi Jón stúlknakórinn Graduale nobili, en ţćr eru 24 á aldrinum 17 - 24 ára sem vaxiđ hafa upp úr Gradualekór Langholtskirkju. Kórinn vakti strax mikla athygli og varđ í öđru sćti í keppni evrópskra ćskukóra í Kalundborg áriđ 2001. Jón hefur veriđ kennari á mörgum kóranámskeiđum, m.a. í Fćreyjum nokkrum sinnum og tvisvar sinnum á Nordklang.
Einsöngvari: Ólöf Kolbrún Hardardóttir
hóf ađ syngja međ kirkjukór Landholtskirkju 14 ára ađ aldri og hefur síđan ţá haft međ höndum mismunandi hlutverk inann kórsins. Eftir lokapróf hennar frá Tónlistarskóla Kópavogs fór hún í frekara tónlistarnám m.a. í Ţýskalandi, Austurríki og á Ítalíu. Ólöf Kolbrún Harđardóttir hefur haldiđ tónleika í Ţýskalandi, Austurríki, Norđurlöndunum og Bandaríkjunum.


