Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Sjónvarp

Íslenskar kvikmyndir í ungversku sjónvarpi

28.2.2007

Ungverska sjónvarpsrásin Duna hefur lagt áherzlu á íslenzka kvikmyndagerð í efnisvali sínu undanfarnar vikur og hafa íslenzku kvikmyndirnar Mávahlátur eftir Ágúst Guðmundsson, Niceland eftir Friðrik Þór og Kaldaljós eftir Hilmar Oddsson verið sýndar. Kvikmynd Dags Kára, Voksne Mennesker, verður svo sýnd 4. marz næstkomandi. Að þessu tilefni hefur sjónvarpsstöðin jafnframt ákveðið að taka viðtal við heiðursræðismann Íslands í Ungverjalandi,  Ferens Utassy, um íslenzka menningu fyrir menningarblaðið Kikötö.



 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.