Tricky Women, hreyfimyndahátíðin 1. til 5. mars 2007
Hreyfimyndahátíðin Tricky Women, sú fyrsta og eina sinnar tegundar í Evrópu, er haldin í fjórða sinn í ár. Hátíðin er haldin á tveggja ára fresti og er tileinkuð hreyfimyndagerð kvenna. Hátíðin er að þessu sinni haldin í Top Kino kvikmyndahúsinu í Vínarborg frá 1. til 5. mars 2007 og er framboð mynda að þessu sinni ekki af lakara tagi, en sýnd verða 162 og þar af eru tvær íslenskar myndir: Heimur Jóns bónda eftir Unu Lorenzen og Das kleine Mädchen, das von Fischherzchen gelebt hat eftur Margréti Rós Harðardóttur. Myndirnar verða sýndar föstudaginn 2. mars, klukkan 17:00 og sunnudaginn 4. mars, klukkan 18:00.


