Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Icelandic Symphony Orchestra

Sinfóníuhljómsveit Íslands 19. febrúar nk. í Vín

19.1.2007

Hinn 19. febrúar næstkomandi mun Sinfóníuhljómsveit Íslands halda tónleika í stóra sal Hljómleikahúss Vínarborgar og hefjast tónleikarnir kl. 19.30. Á efnisskránni er forleikur að Galdra Lofti, op. 10 eftir Jón Leifs, Konsert fyrir píanó og hljómsveit í a-moll, op. 16 eftir Edvard Grieg og sinfónía nr. 5 í d-moll, op. 47 eftir Dímítrí Sjostakovits. Á píanó leikur hinn þekkti rússneski píanóleikari Lilya Zilberstein. Hljómsveitarstjóri er Rumon Gamba.

Sinfóníuhljómsveit Íslands var stofnuð árið 1950 og hefur náð ótrúlega miklum listrænum árangri á skömmun tíma. Hljómsveitin heldur um 60 tónleika á hverju starfsári. Árlega eru farnar tónleikaferðir um landið, venjulega tvær lengri ferðir haust og vor, auk dagsferða. Af tónleikaferðum til útlanda má nefna ferðir til Færeyja, Grænlands, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands, Þýskalands, Austurríkis, Frakklands, Kanada og Bandaríkjanna. Meðal þeirra hljómsveitarstjóra sem mestan þátt hafa átt í uppeldi Sinfóníuhljómsveitar Íslands má nefna Norðmanninn Olav Kielland, Pólverjann Bohdan Wodiczko, Norðmanninn Karsten Andersen, Frakkann Jean-Pierre Jacquillat og á síðari árum þá Petri Sakari og Osmo Vänskä frá Finnlandi. Núverandi aðalstjórnandi hljómsveitarinnar er hinn ungi Breti Rumon Gamba, en heiðursstjórnandi síðan 2002 er Vladimir Ashkenazy.

 Við bjóðum Sinfóníuhljómsveit Íslands hjartanlega velkomna til Vínar!



 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.