Norræna nútímalistasýningin Dreamlands Burn í Búdapest, Ungverjalandi, 7. desember 2006 - 28. febrúar 2007.
Norræna nútímalistasýningin Dreamlands Burn verður haldin í listasafninu Mucsarnok í höfuðborg Ungverjalands, Búdapest, frá 7. desember 2006 til 28. febrúar 2007. Sýningin samanstendur af verkum yfir 30 norrænna listamanna og er bæði stærsta og metnaðarfyllsta listfrumkvæðið á svæðinu í heila öld. Vetrarsýning, sem haldin var í Mucsarnok árið 1906 markaði upphaf norrænnar listar í Ungverjalandi en þar gafst listamönnum frá Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð færi á að kynna verk sín.
Sýningin mun einblína á tilhneigingar nútímalistar, breytingar og spurningar mikilvægar í norrænni list undangenginn einn og hálfan áratug, með tilvísan í sýninguna árið 1906.
Norræn sjónlist hefur hlotið mikla athygli síðastliðin 15 ár og hafa fjöldamargar sýningar verið haldnar innan virtra nútímalistastofnanna Vestur Evrópu en hingað til hafa hliðstæðar sýningar norrænna listamanna ekki verið haldnar í Mið- og Austur Evrópu.
Hliðarviðburðir sýningarinnar eru fjölmargir s.s. kvikmyndir, fyrirlestrar, umræður og tónleikar.
Íslenskir listamenn á sýningunni eru Steingrímur Eyfjörð, Finnbogi Pétursson og Ragnar Kjartansson.
Dreamlands Burn er styrkt af norrænu sendiráðunum fimm, Norrænu ráðherranefndinni, mennta- og menningarmálaráðuneytum Norðurlandanna ásamt ýmsum einkafyrirtækjum.
Nánari upplýsingar má nálgast hér: www.mucsarnok.hu

