Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Iceland´s representatives at the conference; Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir, Counsellor, Gerður Björk Kjærnested, Trainee, Ingimundur Einarsson, Deputy Chief of Police, Sveinn Björnsson, Ambassador

Ráðstefna gegn mansali á vinnuafli

20.11.2006

Dagana 16. og 17. nóvember 2006 fór fram í Vín ráðstefna gegn mansali á vinnuafli hjá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) en sú starfsemi ÖSE er meðal þess sem Ísland leggur hvað mesta áherslu á. Á ráðstefnunni var lögð sérstök áhersla á ákærur og sakfellingar brotlegra og réttlæti fyrir fórnarlömb en afar erfitt hefur reynst að sanna þessa glæpi og sakfella þá sem versla með annað fólk.

Mansal er aldagamalt vandamál en með auknu flæði vinnuafls yfir landamæri eykst hættan á slíkum glæpum. Fórnarlömb eru oft beitt andlegu og/eða líkamlegu ofbeldi, standa í skuld við mansala, þekkja ekki réttarstöðu sína og/eða hræðast brottvísun úr dvalarlandi. Er því afar fátítt að fórnarlömb leiti réttar síns og kæri misgjörðir.

Brýn þörf er á fjölþjóðlegum og samhæfðum aðgerðum stofnanna og einkaaðila til að berjast gegn mansali sem tengist iðulega skipulagðri glæpastarfsemi og glæpahringjum.

 

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast á eftirfarandi vefslóðum:

http://www.osce.org/item/22109.html

http://www.osce.org



 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.