Þingkostningar í Austurríki
Þann 1. október 2006 fóru fram þingkostningar (Nationalratswahl) í Austurríki. Samkvæmt bráðabirgðarniðurstöðum er ríkisstjórn Schüssels kanslara fallin en hún samanstóð af þjóðarflokknum (Österreichische Volkspartei, VPÖ) og bandalags um framtíð Austurríkis (Bündnis Zukunft Österreich, BZÖ).
Ríkisstjórnarflokkarnir bera nú samtals 38,4% úr býtum, en fylgi ÖVP minnkar úr 42,3% atkvæða árið 2002 í 34,2% atkvæða nú og missir flokkurinn 13 þingmenn. Jafnaðarmannaflokkurinn (Sozialdemokratische Partei Österreichs, SPÖ) er talinn sigurvegar kostninganna með 35,7% atkvæða, sem þó er lækkun frá síðustu þingkostningum árið 2002 þegar flokkurinn fékk 36,5% atkvæða og tapar því einum þingmanni nú. Litlu mátti muna að BZÖ, annar ríkisstjórnarflokkanna, kæmist ekki inn á þing en flokkurinn fékk 4,2% atkvæða en viðmiðið er 4% atkvæða. Kostningaþátttaka var 74,2%, sem er veruleg minnkun frá fyrri þingkostningum árið 2002 þegar hún var 84,3%.
Forseti Austurríkis, Heinz Fischer, mun afhenda umboð til stjórnarmyndunar næstkomandi mánudag, 9. október 2006, en það verður að öllum líkindum afhent SPÖ, og munu þá hefjast formlegar stjórnarmyndunarviðræður.
Að neðan má sjá töflu þar sem fram kemur skiptingu þingsæta milli stjórnmálaflokkanna og atkvæðavægi. Nánari upplýsingar um niðurstöður þingkosninganna í Austurríki má nálgast á heimasíðu innanríkisráðuneytis Austurríkis á vefslóðinni: http://wahl06.bmi.gv.at/
|
Bráðabirgðaniðurstöður þingkostninga í Austurríki 1. október 2006 (Nationalratswahl) |
|||||
|
Flokkur |
Skammst. |
Kosn. 2006 (%) |
Kosn. 2000 (%) |
Þingm. kjörnir |
Breytt frá 2002 |
|
Þjóðarflokkurinn |
ÖVP |
34,2 |
42,3 |
66 |
-13 |
|
Jafnaðarmannafl. |
SPÖ |
35,7 |
36,5 |
68 |
-1 |
|
Frelsisflokkurinn |
FPÖ |
11,2 |
10 |
21 |
3 |
|
Græningjar |
Grüne |
10,4 |
9,47 |
20 |
3 |
|
Bandalag um framt. Austurr. |
BZÖ |
4,2 |
(voru ekki til) |
8 |
8 |
|
Aðrir smáflokkar |
3,84 |
1,54 |
|||
|
Samtals |
99,54 |
99,81 |
183 |
||


