Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Synergies with Science 1996-2006 and Beyond.

CTBTO fagnar tíu ára afmæli

8.9.2006

Í tilefni af því að liðin eru tíu ár frá því að samningurinn um allsherjarbann við tilraunum með kjarnavopn (Comprehensive Nuclear-Test-Ban Treaty Organization, CTBTO) var lagður fram til undirritunar var haldin ráðstefna dagana 31. ágúst – 1. september 2006 í Vín í Austurríki undir nafninu „Synergies with Science 1996-2006 and Beyond.“

CTBTO miðar að því að gera heiminn að öruggari stað með því að kveða á um algjört bann með tilraunir með kjarnavopn og hefur því byggt upp afar þróað net 337 eftirlitsstöðva um allan heim til að nema leynilegar kjarnorkutilraunir bæði í lofti og legi. Eftirlitskerfið var þróað í samvinnu við suma færustu vísindamenn nútímans og býður einnig upp á mikla möguleika utan hefðbundins hlutverks við eftirlit með kjarnavopnatilraunum s.s. við flóða- og jarðskjálftavarnir (Tsunami), eldgosavarnir, breytingar á gufuhvolfinu o.s.frv. Tvær eftirlitsstöðvar eru á Íslandi, í Reykjavík og Borgarnesi.

Á ráðstefnu CTBTO var lögð áhersla á áframhaldandi samstarf við vísindasamfélagið og var heimsþekktum vísindamönnum af sviði jarðfræði, loftaflsfræði, gagna- og upplýsingaöflun o.fl. boðið að stýra umræðum um hin ýmsu svið vísindanna og samstarf þess við CTBTO, ásamt möguleikum til framtíðarsamstarfs.

Sjálfur samningurinn hefur ekki enn öðlast gildi þar sem kveðið er á um það í viðauka II að hann öðlist ekki gildi fyrr en 44 tilgreind ríki hafi fullgilt samninginn. Þau ríki eiga það sameiginlegt að ráða yfir kjarnavopnum eða kjarnaofnum. Nú hafa 34 ríkjanna fullgilt samninginn, en þau 10 ríki sem ekki hafa gert það eru eftirfarandi: Kína, Kólumbía,Norður-Kórea, Egyptaland, Indland, Indónesía, Íran, Ísrael, Pakistan og Bandaríkin. Á ráðstefnunni var lögð rík áhersla á að þessi ríki fullgiltu samninginn hið fyrsta.

 Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu CTBTO.



 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.