Sendiráð Íslands - Vín, Austurríki

Naglergasse 2/3/8 1010 Wien - Tel +43 1 533 2771



Fréttir og tilkynningar


Mynd_Snorri_S

Styrkir Snorra Sturlusonar

11.8.2006

Stofnun Sigurðar Nordals auglýsir styrki Snorra Sturlusonar fyrir árið 2007 lausa til umsóknar.

Styrkirnir eru veittir erlendum rithöfunum, þýðendum og fræðimönnum (ekki háskólastúdentum) á sviði mannvísinda til að dveljast á Íslandi í þrjá mánuði hið minnsta í því skyni að kynnast sem best íslenskri tungu, menningu og mannlífi. Styrkirnir miðast að öllu jöfnu við greiðslu á ferðakostnaði styrkþega til og frá Íslandi og dvalarkostnaði innanlands. Af tveimur jafnhæfum umsækjendum skal að jafnaði sá hljóta styrk sem er frá Austur- og Suður-Evrópu, Asíu, Afríku, Rómönsku Ameríku eða Eyjaálfu.

Stofnun Sigurðar Nordals greiðir götu styrkþega meðan á Íslandsdvöl þeirra stendur og í lok hennar skulu styrkþegar skila stofnuninni greinargerð um hvernig styrknum var varið.

Í umsókn sinni skulu umsækjendur gera stutta en rækilega grein fyrir tilgangi með dvöl á Íslandi, dvalartíma, svo og menntun og störfum.

Umsóknir sendist stofnunni fyrir 1. nóvembr 2006.


Stofnun Sigurðar Nordals

Pósthólf 1220

121 Reykjavík



 

 


Fax:

+43 1 533 2774


Opnunartími:

Mán-fös
9:00 - 16:00


Tungumál:

Íslenska, þýska, enska.