Nýr utanríkisráðherra tekur við embætti
Nýr utanríkisráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, tók við embætti 15 júni sl. af Geir H. Haarde sem gegndi embætti utanríkisráðherra frá 27. september 2005 en tók nú við embætti forsætisráðherra.
Valgerður Sverrisdóttir gegndi áður embætti iðnaðar- og viðskiptaráðherra frá 31. desember 1999.
Nánari upplýsingar um nýjan utanríkisráðherra má nálgast á heimasíðunni www.utn.stjr.is


